Hann fann til dæmis þennan stórundarlega ,,hatt" á markaði um daginn og hefur ekki tekið hann niður síðan. Sambýlismaðurinn hefur gert ítrekaðar tilraunir til þess að sannfæra hann um hversu mikill hryllingur þetta höfuðfat er. En nei - litli þverhausinn svarar honum bara fullum hálsi: ,,pabbi mér finnst þetta flott!".
Það verður að viðurkennast að fólk glápir örlítið á okkur þegar við göngum um með litla regnhlífarhausinn í eftirdragi. En hann hefur svör við því eins og öllu öðru: ,,fólk er bara að horfa á mig því ég er svo flottur!".
Snillingur, mér finnst þetta vera mikill smekkmaður á höfuðföt. Praktískt OG flott. Þetta er ungur maður með stíl.
ReplyDelete