Mikið sem ég eldaði hrikalega gott lasagne í kvöld.
Ég notaðist við þessa uppskrift og mun án efa brúka hana framvegis. Þetta var algjört sælgæti. Ég sleppti að vísu ostasósunni - ekki vil ég nú ofkeyra mig í eldhúsinu. Ég setti kotasælu í staðinn og það lukkaðist bara prýðilega.
Mæli eindregið með að þið prófið.
No comments:
Post a Comment