Aldeilis góður árangur hjá sambýlismanninum eftir stutta veiðiferð.
Nýveiddur silungur löðrandi í teriyakisósu og púðursykri. Þvílíkt sælgæti!
Þetta fer síðan inn í ofn í sirka korter.
Dásamleg máltíð.
Það er líka ansi gott að eiga einhvern sem getur veitt í matinn. Þá þarf ekki að kaupa mat . Ég get auðveldlega lifað á silungi eitthvað áfram. Sem merkir að ég get eytt peningum í eitthvað annað. Bless eyðslubann.
Stefnumót við Ebay í kvöld?
Ó, ég er nú hrædd um það.
mér langar til að segja þer hversu frábær bloggari þú.. eg skelli uppúr eftir hverja færslu. ætla rétt að vona þú ætlir að halda blogginu áfram í nánustu framtíð. skoða alltaf hja þer. þú slærð trendnet klarlega út !!!!!!!!!
ReplyDeletemögulega elska ég þig. hver sem þú ert**
Delete