Showing posts with label SHE. Show all posts
Showing posts with label SHE. Show all posts

Dec 29, 2012

Lúxusvandamál.

Mikið er pirrandi að búa einhversstaðar þar sem maður getur ekki bara skroppið í bæinn og verslað sér fáeinar flíkur. Mig vantar hræðilega einhver klæði fyrir áramótin. Það er víst ekki í boði að vafra um og versla á internetinu. Það er orðið alltof seint.






Þessir kjólar fást allir hérna. Ég er yfir mig ástfangin af þeim öllum. 

Það er að vísu ein fatabúð hérna á Reyðarfirði. Já alveg ein! Ég skottaðist þangað áðan með von í hjarta en kom bara út með svartar diskóbuxur. Mjög flottar. En ekkert áramótadress samt sem áður. 

Tjah, nema að ég verði ber að ofan í diskóbuxum. Treð bara á mig einhverju risastóru hálsmeni og fer í flotta skó. Þá tekur enginn eftir því að ég sé bara á júllunum.


Dec 11, 2012

Æ mig auma.







Mig vantar alveg sárlega svona kápu. 44.900 - það er nú bara klink. Að minnsta kosti fyrir fólk á framfærslu frá LÍN. Fást hér.