Ég bauð heitmanni mínum í útsýnisferð um höfuðborgina í gær.
Við komum síðan heim í Breiðholtið, fengum okkur rauðvínsglas og áttum ljúfa stund fyrir framan tökuvélar
iSTV.
Já. Ég tala við púða í auglýsingunni minni. Vinkonur mínar voru svo vænar að benda mér á að nú væri ég búin að tryggja það að ég yrði einhleyp að eilífu.
Whatever. Ég á Harveypúða.
Þegar tökum var lokið sötruðum við hjúin rauðvínið okkar í rólegheitum.
Við lúruðum aðeins fyrir framan sjónvarpið.
Leikar voru auðvitað ekki lengi að æsast þannig að við færðum okkur inn í rúm.
Þarna var Harvey orðinn feiminn. Enda við bæði afar fáklædd undir sænginni.
Allt í lagi. Komum okkur að kjarna málsins.
Ég ætla, í samstarfi við
Art & Text, að gefa einum heppnum lesanda eitt stykki Harvey. Nú eða bara púða með mynd að eigin vali.
Mér er auðvitað andskotans meinilla við þá tilhugsun að gefa einhverjum svona Harveypúða. En ég læt til leiðast.
Til þess að taka þátt þarf eftirfarandi að eiga sér stað:
1. Þið farið inn á Facebooksíðu Art & Text sem er
hér. Þar smellið þið á
LIKE.
2. Þið skiljið eftir comment hérna fyrir neðan færsluna. Hlekkurinn í gráa kassanum. Ef það virkar ekki þá getið þið skilið eftir línu á Facebook og ég set ykkur inn.
3. Við hjónin myndum auðvitað meta það mikils ef þið deilduð færslunni. En það er alls ekki nauðsynlegt.
Þetta er ekkert flókið. Allt þess virði fyrir Harvey.
Við erum farin í Kolaportið.
Heyrumst.
(Allt í lagi. Það þjást mögulega ekki allir af ólæknandi Harvey-blæti. Hann þarf ekki endilega að prýða púðann. Þið getið sett mynd af börnunum ykkar. Bubba jafnvel. Texta. Hvað sem er).