Showing posts with label gjafir. Show all posts
Showing posts with label gjafir. Show all posts

May 26, 2014

Gjafaleikur í samstarfi við Art & Text - sigurvegari.


Jæja.

Þá hef ég loks dregið í gjafleiknum mínum góða sem var í samstarfi við Art & Text.


Mig einkennir ávallt stóísk ró og fullkomið andlegt jafnvægi. Það sést þess vegna ekki hversu mikið ég var að rifna úr spennu yfir þessum útdrætti. 


Sigurvegarinn er sú sem skrifaði komment númer 28.

Eins gordjöss og mér finnst Harvey, (SVO GORDJÖSS), þá myndi ég velja mynd af börnunum mínum.
Kveðja, Oddný Sigurbergs
oddny.sigurbergsdottir(hja)gmail.com

Til hamingju Oddný Sigurbergs. Gleður mig mikið að fá að gefa þér púða. Mest gleður mig þó að þú ætlir að leyfa mér að lúra hjá Harvey í friði. 

Heyrumst fljótlega. 

May 17, 2014

Gjafaleikur í samstarfi við Art & Text.


Ég bauð heitmanni mínum í útsýnisferð um höfuðborgina í gær. 


Við komum síðan heim í Breiðholtið, fengum okkur rauðvínsglas og áttum ljúfa stund fyrir framan tökuvélar iSTV. 

Já. Ég tala við púða í auglýsingunni minni. Vinkonur mínar voru svo vænar að benda mér á að nú væri ég búin að tryggja það að ég yrði einhleyp að eilífu. 

Whatever. Ég á Harveypúða. 


Þegar tökum var lokið sötruðum við hjúin rauðvínið okkar í rólegheitum.


Við lúruðum aðeins fyrir framan sjónvarpið.


Leikar voru auðvitað ekki lengi að æsast þannig að við færðum okkur inn í rúm.


Þarna var Harvey orðinn feiminn. Enda við bæði afar fáklædd undir sænginni.



Allt í lagi. Komum okkur að kjarna málsins. 

Ég ætla, í samstarfi við Art & Text, að gefa einum heppnum lesanda eitt stykki Harvey. Nú eða bara púða með mynd að eigin vali. 

Mér er auðvitað andskotans meinilla við þá tilhugsun að gefa einhverjum svona Harveypúða. En ég læt til leiðast. 

Til þess að taka þátt þarf eftirfarandi að eiga sér stað:

1. Þið farið inn á Facebooksíðu Art & Text sem er hér. Þar smellið þið á LIKE. 
2. Þið skiljið eftir comment hérna fyrir neðan færsluna. Hlekkurinn í gráa kassanum. Ef það virkar ekki þá getið þið skilið eftir línu á Facebook og ég set ykkur inn. 
3. Við hjónin myndum auðvitað meta það mikils ef þið deilduð færslunni. En það er alls ekki nauðsynlegt. 

Þetta er ekkert flókið. Allt þess virði fyrir Harvey. 

Við erum farin í Kolaportið.

Heyrumst.

(Allt í lagi. Það þjást mögulega ekki allir af ólæknandi Harvey-blæti. Hann þarf ekki endilega að prýða púðann. Þið getið sett mynd af börnunum ykkar. Bubba jafnvel. Texta. Hvað sem er).

Jun 24, 2013

Svipmyndir úr afmæli.


Við eyddum rúmlega 10 tímum í veitingabras á laugardaginn. Það er bara of mikið af eldhúshangsi fyrir mína parta. Ég mun ekki sinna eldamennsku aftur fyrr en í fyrsta lagi eftir áramót.






Gleðin var svo sannarlega við völd enda eigum við stórskemmtilega vini og fjölskyldu.




Flip Cup var spilað af mikilli innlifun - að minnsta kosti hjá mér eins og myndirnar gefa til kynna. Á neðstu myndinni má einmitt sjá mig stíga sigurdans eftir að mitt lið sigraði þriðja leikinn í röð. 

Til þess að ljúka þessu afmælisbloggi verð ég að láta bút úr einu ljóði fylgja með. Þetta ljóð prýddi einn pakkann sem sambýlismaðurinn fékk þetta kvöld:

Í Launafli hann starfar alla daga og eitthvað er víst sífellt þar að laga
og heima þarf í kringum sína að skúra því hún er svo upptekin að kúra.
Hún kúrir yfir lærdómsbókum sínum og kíkir eftir naglalökkum fínum
sambýlismaður í kringum hana hoppar, meðan fínerí á vefnum hún sjoppar.
En stundum hún sjoppar samt, nota bene langa og góða ferð til Tene
og þá má sambýlismaðurinn koma með og leika við þeirra krakkapeð.

Dásamlegt partý og ég er orðin æsispennt fyrir afmælishöldum þegar ég verð þrítug. En það er nú ekki fyrr en eftir allavega fimm ár. Samkvæmt minni talningu að minnsta kosti.

Feb 16, 2013

Gjafaleikur á laugardegi!

Jæja, það er komið að nýjum gjafaleik. Vúhú!

Að þessu sinni dreg ég út tvö dásamleg hálsmen frá Shop Couture. Það er einn heppinn aðili sem fær bæði hálsmenin. Hver það verður kemur í ljós á næsta laugardag.



Það sem þarf að gera til að vera með er eftirfarandi:

Þú þarft að fara inn á Facebooksíðu bloggsins og gera like á hana. Síðuna finnið þið hér. Nota bene - það dugir ekki að ýta bara á like hérna fyrir neðan færsluna. 

Síðan þarf að skilja eftir nafn og netfang í kommentakerfinu sem staðsett er í gráa kassanum hérna fyrir neðan. Ef þið getið ekki kommentað einhverra hluta vegna er ykkur óhætt að henda inn nafni og netfangi á Facebooksíðuna og ég skrái ykkur til leiks.

Þið sem hafið fyrir löngu gert like á bloggið á Facebook þurfið að sjálfsögðu bara að henda inn kommenti. 

Það væri líka agalega sætt af ykkur að deila leiknum fyrir mig. En það er auðvitað ekki nauðsynlegt.

Gleðilegan laugardag!

Jan 24, 2013

Sængurgjöf.

Sængurgjafir eru svo skemmtilegar gjafir. Það er svo ægilega gaman að velja eitthvað fallegt og leyfa sér að kafna úr krúttlegheitum.

Síðan mitt afkvæmi kom í heiminn fyrir að verða sex árum (sjitt!) hef ég verið ákaflega hrifin af svokölluðum kjánahúfum. 





Ein lítil vinkona mín fékk þessa í gjöf rétt fyrir jólin. Þessar húfur eru alveg æðislegar. Ótrúlega mjúkar og hlýjar. Það má kaupa þær hér. Þær eru sérsaumaðar og þú getur yfirleitt valið þá liti sem þig langar í.


Hérna má sjá litla hlöllabátinn minn með sína húfu fyrir alltof löngu síðan.


Það má að sjálfsögðu ekki gleyma mömmunni þegar gefnar eru sængurgjafir. Ég man hvað mér þótti ótrúlega vænt um það sem ég fékk á sínum tíma. Þessa bók gaf ég í ,,mömmugjöf" með kjánahúfunni góðu. Ég keypti hana hér. Bókin er stútfull af allskonar skemmtilegheitum um tísku, hár og förðun. Hún hittir örugglega í mark hjá flestum kvenmönnum.

Jæja, áfram með þennan fimmtudag. Alveg að koma helgi.

Alveg að koma tími á rauðvín.

Jan 12, 2013

Gjafaleikur!

Það er víst ákaflega móðins að hafa gjafaleiki á blogginu sínu. Ég verð auðvitað að taka þátt í þeirri tísku.

Þessi gjafaleikur snýst að sjálfsögðu um naglalökk. Ég ætla að gefa fimm vinsælustu naglalökkin sem ég er að selja.


Naglalökkin getið þið skoðað betur hérna.

Það sem þið þurfið að gera til þess að vera með er að like-a bloggið á feisbúkk. Það getið þið gert með því að fara inn á feisbúkksíðuna eða bara ýta á like-takkann sem er staðsettur hérna efst til hægri. Svo þarf að skilja eftir nafn og netfang í kommentakerfinu.

Ef þið eruð nú þegar búin að gera bloggið að ánægjuefni á feisbúkk þá þurfið þið bara að henda nafni og netfangi í kommentakerfið. 

Ógurlega auðvelt og vel þessi virði. Þessi naglalökk eru dásamlega falleg. 

Ég dreg á næsta laugardag. 

Vúhú!

(Kommentakerfið er staðsett hérna beint fyrir neðan færsluna - í gráa kassanum).

Uppfært vegna smá misskilnings: það er kannski ágætt að taka fram að það er EKKI nóg að ýta einungis á like-takkann sem er fyrir neðan bloggfærsluna. Ég get ekki séð hverjir það eru sem gera það. 

Það er nauðsynlegt að skilja eftir nafn og netfang í kommentum og vera búin að gera þessa síðu að ánægjuefni á feisbúkk. Það er einnig kassi hérna efst á blogginu - til hægri, þar er hægt að ýta á like ef þið eruð ekki nú þegar búin að því.