Showing posts with label hamingja. Show all posts
Showing posts with label hamingja. Show all posts

May 1, 2015

Niður á jörðina


Það er dálítið erfitt að detta aftur hingað inn og ætla að fara að tala um kjóla, kökur, kokteila eða naglalökk. Það er allt í einu orðið svo lítilmótlegt. Eitthvað sem engu máli skiptir.

Viðbrögð ykkar við skrifum mínum á miðvikudaginn breyttu einfaldlega öllu. Breyttu lífi mínu. Svona satt best að segja. Já, ég er rosalega dramatísk. Mér er alveg sama. Ég frelsaðist. Frelsaðist undan eigin ranghugmyndum. Þar áttuð þið stóran þátt.

Sjá allar þessar deilingar. Ykkar sögur. Fallegu orðin. Like-in. 

Takk!

Aðfaranótt miðvikudagsins var ég vakandi til klukkan að ganga fimm. Ég var búin að skrifa færsluna fimmtán sinnum. Setja myndirnar af mér inn. Taka þær út. Lesa yfir. Stroka út. Hætta við. Byrja aftur. Ég drakk sjö lítra af kaffi á meðan. Svona sirka. Og sagði öllum loforðum um eilífa hollustu að fokka sér. Að vísu kom ég bara niður einu Oreokexi þessa nótt. Enda við það að fá taugaáfall. 

Ég gafst svo upp. Þreytan yfirbugaði mig. Ég tímasetti færsluna kl. 10 morguninn eftir og ég man að ég hugsaði áður en ég skreið undir sæng ,,andskotinn hafi það, ef þetta fer fyrir brjóstið á einhverjum þá skrifa ég aldrei inn á þetta guðsvolaða blogg aftur". 

Klukkan 09:57 sat ég í vinnunni. Horfði á klukkuna. Var við það að gubba yfir lyklaborðið mitt. Gera í buxurnar. 10:07 voru komnar yfir 50 deilingar. Ótal skilaboð biðu mín. Síminn hringdi og hringdi. 

Þá vissi ég. Vissi að ég hafði gert eitthvað rétt. Það var góð tilfinning. Ég er rétt að stíga niður á jörðina núna. Í kjól. Auðvitað.

Æ, tölum aðeins um kjóla. Þeir skipta víst máli. 



Það var svo mikið sumar í dag. Kalt en sumarlegt. Ég sprangaði um miðbæinn óvenju létt á fæti. Með Bubba í eyrunum. Að kafna úr vellíðan. 

Almáttugur, það er bara svo þungu fargi af mér létt. 


Ég splæsti í þennan fína kjól í Gyllta kettinum um daginn. Eins og ég hef áður sagt frá. 


Ég má til með að sýna ykkur ljósmyndara dagsins. Sjálfsbjargarviðleitin sko. Afkvæmið stakk af til ömmu sinnar og sambýlismaðurinn er á hafinu.

Já, ég dansaði og hringsnerist hérna. Flögraði um i fína kjólnum mínum. Eins og fín kona. Fyrir framan stofuborð. Koll. Súpupott. Ævafornt skartgripaskrín. Og myndavélina. 

Takk. Enn og aftur. Þið eruð ómetanleg. Öll með tölu.

Heyrumst.

Apr 22, 2015

The BIG 3-0


Já. hún er orðin þrítug. 30. Þrjátíu ár búin. Liðin. Ekkert meira tuttugu&eitthvað. Bless og takk. 

Skrýtin tilfinning? Já, örlítið. Aðallega vegna þess að ég hef miklað þetta skref fyrir mér í fjöldamörg ár. Þegar ég var yngri fannst mér fólk í kringum þrítugt vera einhverskonar steinaldarmenn. Fjörgamalt alveg hreint. Og nú er komið að mér. Bráðum fer ég að segja setningar sem hefjast á orðunum ,,í gamla daga..." og ,,þegar ég var ung...". Fer að ræða við börn um sjónvarpslausa fimmtudaga og hvernig á að útbúa heimatilbúin bjúgu. Svona sirka. 

Hvar stend ég svo við þessi tímamót? 

Grá hár: 0
Hrukkur: 13
Brjóst: Svo heppilega vill til að ég tók vart út kynþroska á því svæði. Þarf því litlar áhyggjur að hafa af því að þau fari að leka niður að nærbuxum. 
Andlegt ástand: Í nokkuð góðu jafnvægi. Yfirleitt. Svona oftast.
Líkamlegt ástand: Þarfnast mögulega endurskoðunar. Ég var einmitt að skoða mig allsbera í gær. Eins og maður gerir. Það er þörf á dálítilli stinningu. Svona kalt mat. Ég er eiginlega eins og húðpoki. Húðsekkur jafnvel. Eða eitthvað. 



Afmælisdagurinn sjálfur var svo alveg hreint dásamlegur. 

Ég var á áttunda snooze-i og komin með aðra löppina undan sænginni þegar þessir tveir tilkynntu mér að ég væri ekki að fara fet. Sambýlismaðurinn var búinn að útvega öllum fjölskyldumeðlimum frí í vinnu og skóla. Stór plús í kladdann þar. Risastór. 

Ég lá svo í rúminu eins og skotinn selur þangað til að ég var dregin fram í morgunverð að hætti þeirra feðga. Beikon, Nutella, pylsur - ó, þeir kunna á kransæðarnar í sinni.


Næsta stopp var Skautahöllin. Þar sem ég fékk að dansa um eins og drottning. Látum það liggja á milli hluta hversu tignalegur dans minn var. 


Við maríneruðum okkur í Bláa lóninu í góða þrjá tíma. Og ég þurfti að éta ofan í mig allt það ljóta sem ég hef sagt um lónið. Ég fór síðast í það fyrir tæplega 15 árum. Og virðist hafa orðið fyrir einhverri skelfilegri lífsreynslu - sem ég get bara ómögulega munað eftir. En ég hef borið mikinn kala til Bláa lónsins síðan. Og harðneitað að heimsækja það. 

Nú hyggst ég kaupa mér árskort. Endurnærandi og unaðslegt. Svo við ræðum ekki barinn þarna í miðri laug. Eins og ég hafi hreinlega hannað þetta svæði.

Kvöldið innihélt ómyndaðan snæðing. Já, aldrei slíku vant. Stundum verður maður að leggja frá sér tækjabúnaðinn og njóta.

Þessi þrítugsaldur leggst bara ágætlega í mig.

Heyrumst.

Apr 9, 2015

Fimm hlutir á fimmtudegi



Ég elska barnið mitt rosalega mikið. Yfirleitt. Móðurástin er þó ekki yfirþyrmandi þegar ég stíg yfir þröskuldinn á herberginu hans. Hann gengur um eins og daufblint villisvín. Eða einhverskonar stórstjarna. Sem leggur það í vana sinn að rústa hótelherbergjum. Og ég er vesalings hótelstjórinn sem fær hland fyrir hjartað við aðkomuna að herberginu. Blóðtappa í allar æðar. Vöðvalömun. Taugaáfall. Tár í augun.

Er hann illa upp alinn? Nah, ég ætla ekki að taka það á mig. Umgengni hans annarsstaðar í húsinu er mannsæmandi. Er búið að venja hann á að einhver annar hreinsi upp eftir hamfarirnar? Tjah, kannski. Það er möguleiki. Stór möguleiki.

Jæja. Hann er að minnsta kosti fyndinn. Góð umgengni kemur manni ekkert í lífinu. Vona ég. Hans vegna. 



Hvítt, hvítt, hvítt. Ég er brjáluð í hvítt naglalakk þessa dagana. Alveg sturluð. Já, mamma – ég veit, þetta er eins og að vera með tippex á nöglunum. Þetta er bara svo bjart og fallegt. Og passar við allt. Ekki það að ég beri nokkuð skynbragð á hvað passar saman og hvað ekki. Allir litir passa saman að mínu mati.

Ég nota að sjálfsögðu Barry vin minn M. Enda eina hvíta lakkið sem þarf aðeins eina umferð af. Já, ég hef prófað þau mörg. Þetta er best. Háglansandi og húrrandi fagurt. Fæst hérna.


Ég hef rætt þetta sælgæti við ykkur áður. Ég ætla að gera það aftur. Rauður lakkrís. Rauður himneskur lakkrís. Himnanir gráta í hvert sinn sem ég ramba á poka í MegaStore.

 Lakkrísinn góði er nefnilega ekki alltaf fáanlegur. Sem er ansi hvimleitt. Aðallega af því að ég fer óþarflega oft sérstaka ferð í Smáralind til þess að næla mér í poka. Ókei, fáeina poka.


Hann er líka lekker stofustáss. Eða hann var það. Í klukkutíma. Sirka. 


Ég er í dálítilli sjálfsskoðun þessa dagana. Vinna í komplexum og sjálfinu almennt – eins og ég skrifaði um í síðustu viku. Ég hef verið að forvitnast aðeins undanfarið. Spá, spyrja og spekúlera. Hvað telur fólkið í kringum mig vera minn helsta ókost? 

Óþægileg spurning? Mögulega. En ég lofaði að taka hverju einasta svari af jafnaðargeði. Af stóískri ró. Sem jú einkennir mig. Alla daga. Alltaf.

Svörin voru nokkuð einróma. Tveir ókostir voru títtnefndir. Ég hef ekki snefil af þolinmæði. Bara enga. Nada. Og ég skila aldrei neinu sem ég fæ lánað.

Þar sem ég vinn að bót og betrun ætlaði ég svo sannarlega að rjúka til og skila öllu sem ég hef fengið lánað í gegnum tíðina. Sem er margt. Og mikið. En þá átti ég skyndilega engan handþeytara. Né uppáhalds kjól. Eða súpupott. Þannig að ég snarhætti við. Það getur heldur enginn verið fullkominn.

Þolinmæði. Nei. Hana get ég ekki tileinkað mér. Búin að reyna í yfir 25 ár. Þaulreyndur andskoti. Verður ekki lagað. 


Jæja, það er að hefjast kvöldkaffiboð á Gunnars. Verulega svæsin kókosbollubomba. Með Daim. Rjóma. Dumle-karamellusósu. Ég splæsi í uppskrift um helgina. 

Heyrumst.


Dec 22, 2014

Bits & bobs.


Jæja. Þá er þessari vertíð lokið. Svo gott sem. Allar bókakynningar eru að baki. Ég ætla aldrei að handleika poppkorn aftur. Bara aldrei. Rúmlega 8000 skammtar af poppi í allskonar útgáfum. Ég legg ekki meira á ykkur. Eða mig. Almáttugur minn. 

Þarna er ég á Akureyrarflugvelli að óska þess að til væru tvö eintök af mér. Ég átti flug eldsnemma á síðasta laugardagsmorgun. Svaf að sjálfsögðu yfir mig. Keyrði Yaris inn í snjóskafl og festi hann þar. Mér lá svo á að ég hrifsaði bara töskuna mína og hljóp inn á flugvöll. Hvar bíllinn minn er núna, nei ég veit það ekki. Kemur í ljós. 


Jú, þið sjáið rétt. Hérna skarta ég atriði númer eitt á óskalistanum mínum. Já, ég rellaði. Rellaði þangað til ég var orðin blá í framan. Niðurstaðan var útskriftargjöf. Tekin út fyrirfram. Eins og allar mínar gjafir. Ég er ekki búin að ná misserinu þó. 

Seinni tíma vandamál. 


Ég er að horfa á Hell´s Kitchen þessa dagana. Slefandi. Bráðnandi. Hugsandi. Já, mjög dónalegar hugsanir.  Sjá hann Ramsay minn. Stórgert andlitið. Hrukkurnar. Úfna hárið. Úff, ég þarf stundum að slá mig utan undir. Mmm. Lendar mínar loga. Jájá. 


Alein á kaffihúsi á Akureyri. Að gæða mér á Irish Coffee. Eðlilega.


Stórfínn kjóll úr Gyllta kettinum. 3000 krónur. Við látum það vera.


Ég fór á tónleika með Bubba í gærkvöldi. Ég ætla ekki að skrifa neitt óviðeigandi hérna. Ekki neitt. Vesalings fólkinu við hliðina á mér hefur þó sennilega langað að löðrunga mig. Og það fast. Ekki veitti af sko. Ó, Bubbi. Bubbi minn, elsku Bubbi. 


Ég var svona hress í gærkvöldi.


Aðeins minna hress í morgun. Í kolvitlausu veðri að keyra austur frá Akureyri. Þetta er uppáhalds sjónarhornið mitt. Eina sjónarhornið þar sem ég virðist vera með brjóst.

Jæja. Ég þarf víst að fara að undirbúa þessi jól. Var búin að hlakka afskaplega til að snöflast aðeins með afkvæminu. Ég lýsti fyrir honum áðan öllu sem við ættum eftir að gera. Skreyta piparkökur, búa til piparkökuhús, baka og skreyta. 

,,Þú skalt bara. Ég ætla að kveikja á mynd og slaka á."

Áfram gakk.

Heyrumst.

Nov 29, 2014

Svipmyndir úr útgáfuhófi.


Afkvæmi mitt. Sem ítrekað reyndi að sannfæra gesti um að kaupa Vísindabók Villa frekar en bókina sem móðir hans stritaði yfir.



Elsku bestu systkini mín. Bæði gerð úr gulli.


Fyrsta bókin árituð. Skemmtilega vandræðalegt. Sérstaklega þar sem ég þurfti að spyrja elsku stelpuna fjórum sinnum hvernig nafnið hennar væri stafað. 



Stund milli stríða. Eða þið vitið - sopi milli stríða.


Amma mín lét sig ekki vanta. 


Ég vænti þess að þið séuð öll æst í popphárband. Þau eru fáanleg hérna - ásamt mun hefðbundnara hárskrauti.






Þetta var örlítið óþægileg uppákoma. Ég þarf að tileinka mér dömulegri talsmáta. Það er ekki lekker að segja orðið fokking í hverri setningu. Fyrir framan fulla bókabúð af fólki. Og börnum.





Það er gott að eiga traust bakland. Þessar tvær hef ég þekkt síðan ég man eftir mér. 


Þarna vorum við nýbúin að ræða málin. Mjög alvarlega. ,,Ekki kaupa bókina hans Villa. Keyptu bókina hennar mömmu minnar. Annars fæ ég ekkert að borða."










Þetta var ó svo dásamleg kvöldstund. Takk fyrir að koma. Samt aðeins fleiri þakkir til þeirra sem keyptu. 

Jæja, ég þarf að halda áfram að pakka niður kjallaranum hérna í Breiðholtinu. Þrífa. Deyja. Já og ákveða hvar ég ætla að búa frá og með mánudeginum. 

Heyrumst fljótlega.