Ebayfíkn mín er bara orðin slík að ég man ekki orðið hvað ég panta. Það er svo sem ekkert nýtt af nálinni að inn um lúguna hjá mér detti hlutir sem ég get ómögulega munað eftir að hafa fjárfest í. Það hefur skeð oftar en einu sinni.
En það er alveg nýtt að ég panti sama hlutinn tvisvar. Án þess að veita því athygli.
Ég sýndi ykkur þessa dásamlegu hringi hérna á síðasta fimmtudag. Það eru svona sirka þrjár vikur síðan ég fékk þá í hendurnar.
Eh já. Á föstudaginn datt þessi pakki svo inn um lúguna. Sömu hringirnir. Ég hef pantað þá tvisvar. Greinilega með einhverju millibilli fyrst það leið svona langur tími á milli þess sem pakkarnir bárust.
Ég þarf virkilega að hætta að drekka rauðvín.
Og hanga á Ebay.
Ps. Sú sem verður fyrst að skilja eftir komment undir þessa færslu má eiga þessa gullfallegu hringi! Ég hef víst ekki nógu marga putta fyrir þetta allt saman.






