Showing posts with label útsölur. Show all posts
Showing posts with label útsölur. Show all posts

Jun 30, 2014

Útsölur.

Ég hata útsölur. Hata þær.





Ég sem var hætt að versla og búin að henda veskinu í ruslið. Útsala á naglalökkum, jeminn. Svipað og fá bónorð frá Bubba. Ekki hægt að segja nei. No can do. 

Útsalan fer fram hérna. Afsláttarkóðinn er ÚTSALA.

Þið farið þarna inn á eigin ábyrgð. Ég er komin með þessi lökk í körfu og er að fara að rúlla yfir varalitina.
Guð hjálpi mér.

Heyrumst.

Jan 10, 2014

Ó, nei.


Bölvaði Gyllti köttur. Bölvaðar útsölur.

Ég var illa fyrirkölluð. Svaf afskaplega lítið í nótt. Gjörsamlega sárþjáð af hálsbólgu og sjálfsvorkunn. Aðstæður voru mér hreinlega ekki í hag þegar ég gekk inn í búðina sem ég elska svo heitt.


Skór? Já. Það er vel mögulegt.




Í gær stóð ég í mjólkurkælinum í Bónus og sannfærði sjálfa mig um að ostur væri óþarfa lúxus fyrir fátækan námsmann. 

Í dag keypti ég skó. 

Forgangsröðun? Nei, ekki til í minni orðabók.

Heyrumst.

Nov 15, 2013

Fimm hlutir á fimmtudegi (þó það sé föstudagur).

Ég geri mér fulla grein fyrir því að ég brást ykkur í gær. Gærdagurinn var bara ákaflega þéttpakkaður - já, það var miðnæturopnun í Smáralind. Ég get ekkert verið allsstaðar. Bæði þar og fyrir framan tölvuna. Nei. Ekki læt ég miðnæturopnun framhjá mér fara - það var afsláttur allsstaðar. Ég þarf bara að heyra orðið afsláttur og allt fer í fokk. Lærdómur, blogg, almenn skynsemi - allt víkur fyrir afsláttaástinni. Þið þekkið þetta. Vona ég.

Snúum okkar að fimm hlutum þennan ágæta fimmtudag.


Ég les mikið af bloggum, bæði íslenskum og útlenskum. Stundum rek ég augun í færslur sem bera nöfn eins og ,,Hvað er í töskunni minni?" Yfirleitt fylgir svo mynd af dásamlega fallega uppröðuðum snyrtivörum, munnþurkkum og jafnvel merkjaveski. Ég neita að trúa þessu. Það gengur enginn um með svona fínt innihald í töskunni sinni. Ef svo er þá er ég róni. Róni!

Ég hellti úr minni tösku á borðið hérna í morgunsárið. Þarna má sjá verulega tæpan banana, tóman snakkpoka, plástur, heftara (neh, ég veit ekki), tannþráð, verkjatöflur útklíndar í varalit, þrjár bingókúlur sem voru bara á stjákli um töskuna, fjórir varasalvar, einn eyrnalokkur, sælgætisbréf og fleira misfallegt.


Ég læt ekki snjóstorm stöðva mig þegar kemur að því að klæðast kjólum. Ég tók þetta meira að segja alla leið og fór í blómakjól.

Eruð þið að súpa hveljur yfir speglamyndinni? Við vorum búin að ræða þetta. Höfum á bak við eyrað að ég bý ein og ef ég tæki ekki speglamyndir þá sæjuð þið mig aldrei!


Þetta er svo tælingarblikkið mitt sem ég hef verið að beita á háskólasvæðinu undanfarna viku. Kona má nú vonast eftir salernisboði. Andskotinn.

Nei. Þetta hefur ekki borið árangur.


Talandi um miðnæturopnun í Smáralind. Það var allt á afslætti sko. Allt já. Þar á meðal uppáhalds lyktin mín úr The Body Shop. Ekki get ég lyktað illa. Þessi lykt er líka svo góð - ef þið rekist á mig einhversstaðar þá megið þið pikka í mig og ég skal leyfa ykkur að þefa af mér. 


Ég fæ svona matarmaníur. Ef ég finn eitthvað gott þá borða ég endalaust af því og get ekki hætt að hugsa um það. Í augnablikinu spilar abt-mjólk með vanillubragði þetta hlutverk í mínu lífi. Ég fæ ekki nóg. 


Þessi mynd er tekin uppi í rúmi klukkan tvö í nótt. Ég gat ekki sofið. Ekki vegna þess að ég var svöng, nei. Mig langaði svo í eina svona dós að ég gat ekki fest svefn. Ég gat ekki hugsað um neitt annað en ljúfa vanillubragðið og brakið í múslíinu. Mmm.

Jæja, föstudagurinn bíður mín. 

Eigið hann ljúfan!

Heyrumst fljótlega.

Jul 9, 2013

Bits and bobs.

Ó, Jogerís. Ef ég byggi á höfuðborgarsvæðinu myndi ég aldrei láta neitt annað inn fyrir mínar varir. Aldrei.

Við mæðgin erum agalegir sælkerar. Vitum fátt betra en kaffihúsaferðir með rjóma.

 
Ég verslaði mér guðdómlega skó í dag. Ég gat ekki sleppt því - 90% afsláttur! 2500 krónur í staðinn fyrir 25 þúsund. Slíku tilboði neitar maður ekki. Ó, nei.

 
Ókei, eitt skópar enn. Þetta bara datt upp í hendurnar á mér. Þeir áttu að kosta 5000 krónur en ég fékk þá á 1200 kall. Hreinn gróði!

Bölvuð naglalökk. Sumt fólk fer aldrei út í búð án þess að grípa með sér nammi - ég fer hinsvegar aldrei í búð án þess að næla mér í eins og eitt stykki naglalakk. Jafnvel tvö.

Í þessum skrifuðu orðum er á ég gistiheimili í Keflavík að hlusta á sambýlismanninn reyna að selja mér þá hugmynd að borða á KFC í kvöld. Oj bara.

Við heyrumst næst frá Tenerife.
(Ef þið saknið mín er ykkur velkomið að elta mig á Instagram - @gveiga85).

Adiós í bili.


Jul 3, 2013

Útsala!

Ég elska útsölur. Ó já.

Það er einmitt gríðarlega góð útsala í vefverslun sem ég held mikið upp á - velvet.is.


Almáttugur - það er til svo margt fallegt. Og unaðslega ódýrt!


Ég lét mér duga að kaupa þetta tvennt. 

Í bili.

Jun 3, 2013

Afsláttaást.

Ég elska afslætti. Þið vitið að það þarf ekki mikinn afslátt til þess að ég geti réttlætt það að spreða örlítið.

Ég villtist inn á síðuna hjá Heimkaup áðan. Þar fann ég sumarvaralitina frá Maybelline á 20% afslætti og frí sending hvert á land sem er. 


Hérna getið þið verslað ykkur dásamlega varaliti á afslætti. Þeir eru á 1960 krónur stykkið - mig minnir að ég hafi borgað yfir 2500 krónur fyrir svona varalit keyptan í apóteki. 

Jan 30, 2013

Miðvikudags.




Ég er næstum dáin úr hamingju yfir þessari ullarpeysu sem ég keypti í Gyllta kettinum um daginn. 3000 krónur - svona líka hræódýr. Gyllti kötturinn var með langbestu útsöluna á landinu þennan janúarmánuð. 

Ég tel mig fyllilega geta dæmt um það þar sem ég þræddi útsölur bæði á Akureyri og í Reykjavík. Það var 50% afsláttur af öllu í búðinni hjá þeim alveg frá upphafi, peysudagar, pelsadagar og núna í útsölulok voru pokardagar. Þar gastu troðið eins mikið og þú vildir af fötum í poka en borgaðir bara ákveðið verð fyrir hann. 

Ég hefði hugsanlega verið tilbúin til þess að gefa af mér einn eða tvo útlimi til þess að taka þátt í slíkri gleði.

Áhugaverður dagur framundan. Í dag er ég mannfræðingur. Fyrsti dagur í vettvangsrannsókn fyrir meistararitgerð og ég er farin að svitna á rassinum. Kaffibolli númer átta er að klárast og fötin farin að límast við mig. 

Ekki samt spyrja mig hvað mannfræðingar gera.

Ég er ennþá að reyna að komast að því sjálf.

Jan 8, 2013

Útsölukaup.


Ég ætla ekkert að hætta að ræða um útsölur. Nei aldeilis ekki. Þetta er þó sennilega síðasta útsölufærslan. Mitt margumtalaða eyðslubann gerir það að verkum að ég mun ei versla meira á næstu misserum. Alls ekki. Ég má það ekki. Það er bannað. 

Fyrir eyðslubann fjárfesti ég hinsvegar í þessu stórfína gallavesti. Fékk það héðan á 50% afslætti. Maður getur nú ekki slegið höndinni á móti slíku tilboði. Ég var samt búin að minnast á þetta vesti áður. Mér finnst það bara eiga skilið aðra færslu - sérstaklega þar sem ég skarta því. Enda er ég eðalmódel. 

Vestið er ennþá til hjá þeim - og fullt af öðrum gersemum á 50-70% afslætti. Svona fyrir þá sem ekki eru í eyðslubanni.


Dec 28, 2012

Útsala Vol.2.

Hólímólí. Útsala á skóm. Það er ekki hægt að láta slíkt framhjá sér fara, er það? Mæli með að þið kíkið við hérna.

Ég er að íhuga fáein pör. ÍHUGA sko - ekki kaupa. Það er alls ekki það sama.






Kannski að ég kaupi mér eitt par. Ég gef mér það bara í afmælisgjöf.

Ég á að vísu ekki afmæli fyrr en í apríl en það eru engar útsölur þá. Þannig í raun og veru er ég að spara ef ég kaupi mér skó núna en ekki í apríl. 

Neeeei. Ég má ekki kaupa. Ég var að versla mér föt í gær. Á útsölu samt - sparnaður sko. 

Ég keypti mér líka smá naglalakk í dag. Og snyrtidót. Andskotinn.

Ég ætla að sofa á þessu.

Dec 27, 2012

Útsala.

Ég á rosalega erfitt með að halda þvagi yfir einhverju sem kallað er útsala. Í dag hófst ein slík hérna.

Ég er nú þegar komin með tvennt í ,,körfu".


Gallavesti. Nammi namm.


Loðpeysa sem ég er búin að hafa augastað á dálítið lengi.

Ég á þetta bara fyllilega skilið eftir dramatík gærkvöldsins. Ég var líka að vinna í dag. Í sjálfu jólafríinu mínu. Þannig að tæknilega séð er ég búin að vinna mér inn fyrir þessu. 

Ég fékk heldur engin föt í jólagjöf. 

Þessi kaup eru því fullkomlega réttlætanleg.