Dec 27, 2012

Útsala.

Ég á rosalega erfitt með að halda þvagi yfir einhverju sem kallað er útsala. Í dag hófst ein slík hérna.

Ég er nú þegar komin með tvennt í ,,körfu".


Gallavesti. Nammi namm.


Loðpeysa sem ég er búin að hafa augastað á dálítið lengi.

Ég á þetta bara fyllilega skilið eftir dramatík gærkvöldsins. Ég var líka að vinna í dag. Í sjálfu jólafríinu mínu. Þannig að tæknilega séð er ég búin að vinna mér inn fyrir þessu. 

Ég fékk heldur engin föt í jólagjöf. 

Þessi kaup eru því fullkomlega réttlætanleg. 

2 comments:

  1. þegiðu hvað þessi peysa er falleg!
    p.s. ég stökk upp úr stólnum í gær þegar ég heyrði fyrstu útsölu auglýsinguna. elska þennan tíma!

    ReplyDelete
  2. oh. bölvaðar útsölur. ég elska þær. og hata pínu líka. mjög erfitt allt saman!

    ReplyDelete