Showing posts with label velvet. Show all posts
Showing posts with label velvet. Show all posts

Jul 3, 2013

Útsala!

Ég elska útsölur. Ó já.

Það er einmitt gríðarlega góð útsala í vefverslun sem ég held mikið upp á - velvet.is.


Almáttugur - það er til svo margt fallegt. Og unaðslega ódýrt!


Ég lét mér duga að kaupa þetta tvennt. 

Í bili.

May 30, 2013

Fimm hlutir á fimmtudegi.


Ég er voðalega skotin í hvítu naglalakki þessa dagana. 



Fínu speglagleraugun sem ég pantaði héðan um daginn. Ég hef að vísu ekki enn fengið að skarta þeim því að afkvæmið virðist hafa erft sólgleraugnasýkina frá móður sinni og neitar að láta þau af hendi.




Nóa kropp með karamellubragði! Guð minn góður. Það er deginum ljósara að ég verð örlítið yfir kjörþyngd eitthvað áfram. Þetta bölvaða kropp hans Nóa er guðdómlegt. Ég fékk nokkra fjölskyldumeðlimi í heimsókn í gær og það var bókstaflega slegist um pokann.


Sambýlismaðurinn er auðvitað sá allara myndarlegasti. Hann smíðaði þennan ljómandi fína kassa í garðinn og fór að setja niður hinar ýmsu matjurtir eins og óður maður. Þessi elska.


Morgunsopinn hefur farið fram á tröppunum þessa vikuna í sólskini og sumaryl. Mig vantar sólpall og garðhúsgögn. Og einbýlishús. Og fallega könnu undir mjólkina þannig að ég þurfi ekki að burðast með fernuna út um allt eins og ég búi í hjólhýsi.

Jæja, nýr poki af Nóa karamellukroppi bíður mín. Þetta étur sig víst ekki sjálft.

May 17, 2013

Óóóskalistinn minn.


1. Agalega fallegt hálsmen frá Curvy.is - enginn sendingakostnaður, vúhú! 
2. Kögurvesti frá Lakkalakk. Mig vantar það sárlega. Ég á engin vesti. Ókeypis sending. Ég elska búðir með engan sendingarkostnað, yes I do!
3. Ótrúlega fallegir hringir frá Velvet.
4. Ó, þessir skór. Fást hér. Fríar sendingar út um allan heim!
5. Ég er sjúklega skotin í þessum eyrnalokkum. Fást hér ásamt fullt af öðrum gersemum.

Ég veit, ÉG VEIT, ég er nýkomin frá útlöndum. Peningalaus og allslaus. Og hef ekkert að gera með að skoða netverslanir. En ég er bara að skoða. Skoða. Ekki kaupa.

Að minnsta kosti ennþá.

Apr 3, 2013

Sumarglingur.

Mig langar í svo margt. Miiiig langar í svo margt - ég er sko að kyrja þessi orð fyrir framan tölvuna í augnablikinu. Langar, langar í svooo margt.

Ég er samt að reyna að hemja mig og versla ekki allan fjárann sem ég finn á internetinu - eins og ég geri aðeins of iðulega. Ég er nefnilega að fara til Akureyrar um helgina. En ég ætla heldur ekki að versla þar. Nei.

Ég er að spara. Ef einhver finnur handa mér vinnu þá get ég hætt að spara.

En já, það sem mig langar í - ég er orðin hundleið á öllu sem ég á. Mikið sem ég á erfitt.





Ókei, ég á reyndar svona hálsmen. En það er bleikt sem er bara alls ekki það sama og blátt.


Þetta ljúfmeti fæst allt saman í LakkaLakk. Það er meira að segja tilboð á öllum fylgihlutum þar núna. En ég læt ei fallast í freistni.




Þessar dásemdir koma héðan.



Að lokum - sólgleraugu. Bráðnauðsynleg sumareign. Ég held ég neyðist samt til að kaupa mér báðar þessar tegundir. Ekki vil ég að sólin skaði í mér augun. Ég verð líka að eiga tvenn - ein til vara. Ég á nú reyndar fáein sólgleraugu. En það er gott að eiga nóg - verðum að passa augun. 

Gleraugun koma héðan.

Jan 3, 2013

Morgunstund gefur gull í mund.

Það er nú fátt meira hressandi en að skella sér í smá verslunarferð á internetinu fyrir klukkan tíu á fimmtudagsmorgni.


Þessa fann ég á Ebay. Ekkert merkileg en alveg bráðnauðsynleg samt sem áður. Ég á bara risastórar töskur sem ég finn aldrei nokkurn skapaðan hlut í. Þannig að þessi litla dúlla verður kærkomin viðbót í töskusafnið. Og hún kostaði bara 2 dollara - gefins, ó já!





Ég þurfti svo aðeins að kíkja á útsöluna hérna. 30% afsláttur af öllu og ekki nokkur leið að fara ,,tómhentur" út af þessari síðu. Ég fékk þessa fjóra hluti á innan við 3000 krónur. Ekki amalegt það!

Á morgun ætla ég að versla meira. Ekki á internetinu að vísu, heldur ætla ég að bregða undir mig betri fætinum og skreppa til Akureyrar. Kíkja á útsölur og hafa það notalegt. 

Eftir helgi ætla ég svo í eyðslubann. Það verður fróðlegt.

Dec 18, 2012

Skraut fyrir hálsinn.

Í gær fékk ég póst þar sem ég var spurð hvar væri hægt að panta sér falleg hálsmen. Mér fannst því stórfínt tilefni til þess að smella í eina færslu um hálsmen - ég geri nefnilega dálítið mikið af því að skoða glingur á netinu. Ókei, já - ég panta svolítið mikið af því líka.


















Þessi hálsmen fást öll í netverslun Velvet. Þau eru dásamlega ódýr og það er frí sending út á land í desember. Mörg þessara hálsmena hérna fyrir ofan fást einnig í fleiri litum - ég setti bara inn það sem mér finnst fallegast. Og ég er auðvitað aðeins litríkari en eðlilegt þykir.





Þessi tvö eru frá Lakkalakk. Mér finnst þau hrikalega flott. Mæli með því að þið farið inn á síðuna hjá þeim og skoðið fylgihlutina - þar leynast ýmsar gersemar.

Í dag er fjórði í veikindum og ég eyði jólunum á hæli ef þessu fer ekki að linna. Það er stutt í taugaáfallið. En það má svo sem koma í veg fyrir það með því að panta sér eitthvað fallegt. Smá verslunarferð á internetinu gerir geðheilsunni gott. Minni geðheilsu að minnsta kosti - geðheilsa sambýlismannsins er allt annar handleggur.

Þangað til næst.



Nov 29, 2012

Að næra sálina.

Ég er ekki að fara að skrifa neinn djúpan pistil um hvernig skuli næra sálina - ó þvert á móti. Hinsvegar get ég  sýnt ykkur hvað nærði mína sál þessa vikuna:




Þetta fékk ég inn um bréfalúguna á máudaginn. Ég pantaði þessi fínheit héðan. Ég hef tvennt að segja mér til varnar. Í fyrsta lagi þá var ennþá 20% afmælisafsláttur í þessari búð - eins og síðast þegar ég pantaði þaðan. Ég elska afslætti og get með engu móti staðist þá.

Í öðru og síðasta lagi þá fékk ég mér örlítið hvítvínstár á síðasta föstudag og þessi pöntun átti sér stað á glasi tvö. Meira hef ég ekki um málið að segja.