Ég splæsti á mig nýjum maskara fyrir helgi. Eftir að hafa verið gallharður aðdáendi ,,gula" maskarans frá Maybelline í einhver ár ákvað ég að sleppa fram af mér beislinu og kaupa öðruvísi maskara frá sama merki.
Ég hef notað þennan gula svona næstum daglega síðan 2009 minnir mig. Fremur ódýr og skilar verkinu vel af hendi.
Þessum er ég svo nýbúin að fjárfesta í, Falsies Feather-Look frá Maybelline. Ég er nú eiginlega bara ekkert skotin í honum eftir að hafa notað hann þrisvar. Hann er alltof klístraður að mínu mati og maður þarf eiginlega heilan stauk af eyrnapinnum til þess að drífa upp drulluna sem hann skilur eftir sig í kringum augun.
Svona lítur burstinn á honum út. Hann er eiginlega of mjúkur fyrir mína parta - ef það má orða það þannig.
Maskarinn er samt ekkert alslæmur - hann gerir alveg helling fyrir augnhárin. Á neðri myndinni var ég búin að strjúka ca. þrisvar yfir þau. En örugglega búin að brúka 12 eyrnapinna til þess að ná maskaranum af stöðum sem hann átti ekki heima á. Hann kostar næstum 3000 krónur - dálítið dýrari en guli félagi minn. Ég myndi að minnsta kosti ekki kaupa hann aftur.
Mig langar samt ennþá í nýjan maskara - þrátt fyrir farsælt samband við þann gula. Þið megið endilega ráðleggja mér - mér er alveg sama hvað maskarinn kostar. Sambýlismaðurinn splæsir.