Showing posts with label hvítvín. Show all posts
Showing posts with label hvítvín. Show all posts

Dec 6, 2013

Rub23.


Í gærkvöldi var mér boðið í hreint út sagt unaðslega veislu þar sem Rub23 fagnaði fimm ára afmæli sínu.




Þetta var ó svo kærkomið og fallegt át. Dásamlega ljúffengt. Ákaflega góð tilbreyting frá 39 króna núðlunum sem ég snæði iðulega í kvöldmat. Ókei, ég villist reyndar endrum og sinnum á Noodle Station í Hafnarfirði. Bara annað slagið. Afgreiðslumaðurinn þekkir mig að vísu orðið með nafni en það er önnur saga.




Þetta boð var alveg til fyrirmyndar. Þegar ég segi til fyrirmyndar á ég að sjálfsögðu við að það var ítrekað fyllt á vínglasið mitt. Ó, það þarf ekki meira til þess að gera mig hamingjusama.


Sjáið bara hvað hún er hamingjusöm. Með fullan munn af sushi og líklega nýbúin að taka gúlsopa af víni.

Eigið góðan föstudag - fimm hlutir gætu mögulega dottið inn í dag.

Heyrumst.

Aug 14, 2013

Bits and bobs.

 
 
Ég held áfram að stunda sjálfsþurftarbúskapinn af miklum móð. Verst að við mæðgin náðum ekki einu sinni botnfylli í þessari berjaferð.

 
Svona súkkulaðikrem má ekki undir neinum kringumstæðum vera til í húsinu. Ég treð einni dós í andlitið á mér án þess að blikna. Ég stunda þessa hegðun aðallega á nóttunni - ég vil alls ekki að sambýlismaðurinn sjái hvers ég er megnug þegar súkkulaði er annars vegar.

Talandi um súkkulaði. Ég fékk dásamlega góða súkkulaðiköku í afmælisveislu um helgina. 

 
Örlítið meira af súkkulaði. Þetta er uppáhalds súkkulaðið mitt í öllum heiminum. Það þarf sko mikið til þess að öðlast þann titil þegar súkkulaðisvelgur eins og ég á í hlut. Það er eiginlega lán í óláni að þetta súkkulaði fæst ekki á Austurlandi. 

Marilyn vinkona mín prýðir fleiri en einn vegg í íbúðinni. Þessar myndir setti ég upp á skrifstofunni minni í dag. Ég treysti á að þær varðveiti geðheilsu mína yfir ritgerðarskrifum í haust.

 
Ég eldaði svo brjálæðislega góðan mat í kvöld. Og það besta er að ég notaði enga uppskrift. Vei fyrir mér. Ég kann ekkert að elda án uppskrifta. En þetta súrsæta svínakjöt sló í gegn. Hjá sambýlismanninum að minnsta kosti - mínum eina matargest þetta kvöldið. 

Þar sem að ég er augljóslega meistari með Wokpönnuna þá ætla ég að eyða kvöldinu með þessari bók. Ætli ég splæsi ekki á mig örlitlu hvítvínstári með lestrinum. Það er svo fjári gott veður. Ég á það líka skilið eftir eldamennsku kvöldsins.

Ykkur er velkomið að elta mig á Instagram - @gveiga85. Þar má finna fleiri misskemmtilegar myndir.

Heyrumst!

Mar 21, 2013

Fimm hlutir á fimmtudegi.




Ég gaf eldgömlu hálsmeni nýtt líf með einni naglalakksumferð. 


Veggurinn á skrifstofunni minni er í vinnslu. Það er agalega gott að kíkja á þetta veggspjald þegar maður er við það að bugast og klóra úr sér augun.



Eitthvað sem nauðsynlegt er að minna sig á endrum og sinnum.


Ég get nú ekki státað mig af því að vera ein af þeim sem skreytir fyrir páskana. Ég stóðst samt ekki mátið þegar ég sá þessar gullfallegu greinar í Krónunni í gær. Búntið af þeim kostaði líka voðalega lítið. 800 kall, það hljóta að teljast kjarakaup.



Ah, nýr varalitur. Bleikur, skær og fagur. Ég mæli með því að þið kíkið á sumarlitina frá Maybelline - þeir eru unaður á að líta!


Notalegt vinkonukvöld í uppsiglingu. Hvítvín, maskar og Maltesers. Mjög góð blanda.

Eigið gott fimmtudagskvöld mín kæru.

Mar 16, 2013

Hvítvínshindberja-spritzer.


Ég er nú alls ekki hrifin af víni - en þetta er ótrúlega ferskt og gott. Höfum það á hreinu að ég tók myndir af þessum framkvæmdum í gærkvöldi. Ég drekk ekki fyrir hádegi á laugardögum. Að minnsta kosti ekki á Íslandi.



Í þennan drykk þarf:

Hálfsætt hvítvín
Sprite 
Frosin hindber


Svipuðu magni af hvítvíni og Sprite er hellt saman í glas.



Vænni lúku af frosnum hindberjum er síðan skellt saman við. Ágætt er að leyfa drykknum að standa í smástund. Ef maður getur mögulega hamið sig. Ég get það yfirleitt ekki.


Þetta er líka ótrúlega sniðugt fyrir saumaklúbba eða stelpupartý. Þá er hægt að hella góðri skvettu af hvítvíni í fallega könnu og sama magni af Sprite út í. Slatti af hindberjum saman við og þið eruð komin með ódýran og góðan kokteil sem fellur vel í kramið hjá flestum.

Hafið þó í huga að þessi drykkur rennur frekar hratt niður. 

(Hugmyndin kemur héðan).

Feb 15, 2013

Uppáhalds drykkurinn minn.

Nei, ég er ekki að fara að tala um rauðvín eins og eflaust margir hafa haldið. Í kvöld er það hvítvín.



Það sem þarf í þennan dásamlega drykk er ekki margt:

Hvítvín (mér finnst best að nota hálf sætt)
Sprite (Zero að sjálfsögðu)
Lime


Væn skvetta af hvítvíni fer í fallegt glas og svipað magn af Sprite fer þar saman við.


Örlítið lime kreist út í og 2-3 sneiðar settar ofan í glasið.


Síðan er bara að njóta.