Showing posts with label áfengi. Show all posts
Showing posts with label áfengi. Show all posts

Dec 20, 2013

Jólakokteillinn: Eggnog.


Mig hefur alltaf langað til þess að smakka þennan verulega ameríska jólasjúss - eggnog eða eggjapúns eins og við myndum líklega kalla það. 



Eggjapúns.

4 egg
90 grömm sykur
315 millilítrar heit mjólk
125 millilítrar viskí
125 millilítrar rjómi
Múskat


Aðskiljið hvíturnar og rauðurnar. Þeytið rauðurnar ásamt sykrinum þangað til blandan verður létt og ljós. Notist við skál sem þolir hita.


Hellið heitri mjólkinni saman við og hrærið vel saman.

Látið vatn sjóða í stórum potti (sem skálin kemst fyrir ofan á). Þegar suðan er komin upp lækkið þá undir en samt þannig að suðan haldist. Skálin er sett yfir vatnið og hrært varlega í með trésleif í 5-10 mínútur.


Þegar eggjablandan hefur þykknað og er farin að loða við skeiðina er skálin tekin af hitanum.



Eggjablöndunni er leyft að kólna alveg. Eftir það fer viskíið saman við. 


Þeytið rjómann og eggjahvíturnar í sitthvoru lagi. Hrærið helminginn af rjómanum og helminginn af eggjahvítunum varlega saman við eggjablönduna. Þegar það er orðið vel blandað saman fer afgangurinn út í. 


Að lokum má hella sér vænni skvettu í fallegt glas og dusta örlitlu múskati yfir.


Þetta er virkilega, virkilega gott. Já alveg virkilega!

Ég mæli svo sannarlega með því að þið prófið. 

Heyrumst.

Oct 11, 2013

Bleikur sjúss í bleikum október.


Ég lagðist í kokteilagerð síðdegis á þessum ágæta bleika föstudegi. Enda bráðnauðsynlegt að hafa áfengi við hönd á meðan dundað er við eldamennskuna svona í vikulok. 

Bleikur sjúss:

Slurkur af vodka
Annar slurkur af gini
Rauður kristall plús
Jarðaberjasvali

Jarðaber
Hálf sítróna
Sítrónubörkur

Klakar
Fáein sykurkorn
Bleikur matarlitur


Þrjú jarðaber eru skorin í bita og slatti af berki raspaður af einni vænni sítrónu.


Jarðaberin og börkurinn fer í krukku. Nú eða glas. Fáeinum kornum af sykri stráð yfir og hálf sítróna kreist út í. Síðan er þetta hrært varlega saman með gaffli.


Klökum hent út í. Gini sjússað saman við.


Já. Sjússum vodkanu saman við líka. Að lokum er örlítið af jarðaberjasvala hellt út í og fyllt upp í krukkuna með rauðum kristal plús.


Ljómandi. Svo ljómandi fínt.


Ég sat síðan með kokteilinn minn úti í hlýju haustveðrinu.

Dásemdin ein.

Njótið kvöldsins. 

Sep 13, 2013

Happy Hour.


Þessi er góður. Mjög góður!


Í þennan stórfína föstudagskokteil þarf eftirfarandi:

Hristara
Klaka
3 stykki jarðaber
Hálfa sítrónu
1 matskeið af sýrópi
Vodka - góða skvettu. 
Sprite (Zero auðvitað)



Til að byrja með eru jarðaberin skorin í sneiðar og þeim hent í hristarann. Sýrópið fer svo þar saman við.


Þjappa þessu dálítið vel saman.



Sítrónan er kreist út í og vodkanu sjússað saman við. Ekki gleyma vodkanu. Alls ekki. Þetta er svo hrist saman í mínútu eða svo.



Að lokum er fyllt upp í glasið með Sprite.


Ah, bráðnauðsynlegt á föstudegi!

Aug 30, 2013

Skál!


Þetta er virkilega ljúffengur kokteill. Eiginlega alveg hættulega góður - að minnsta kosti fyrir kokteilþambara. 


Í þennan drykk þarf:

Vodka
Lime
Eplasafa
Trönuberjasafa
Engiferöl


Glasið er fyllt af klökum og hálft lime kreist út í. Dágóð lögg af vodka fer í glasið þar á eftir. Síðan skvetta af bæði epla- og trönuberjasafa. Að lokum er svo fyllt upp í með engiferöli.



Ég fyllti glasið helst til mikið og þurfti að bjarga málunum. Ég læt ekki áfengan dropa fara til spillis, ó nei - slíkt mun seint spyrjast út um mig.


Algjör dásemd og heldur betur nauðsynlegur sjúss eftir langa viku.

Aug 23, 2013

Strawberry Gin Smash.


Sambýlismaðurinn fékk þessa ljómandi fínu ginflösku í afmælisgjöf í sumar. Og þar sem að ég kann illa að meta að hafa óopnaðar áfengisflöskur á barnum mínum (okkar, ókei) ákvað ég að fara á stúfana og finna góðan ginkokteil. 

Ég get ómögulega drukkið gin í greip eða tónik. Ég drakk um það bil 70 lítra af slíkum mixtúrum um verslunarmannahelgina árið 2004. Aldrei aftur. Ég finn meira að segja ennþá ginbragð af greipi. Oj bara.


Strawberry Gin Smash.

1 teskeið sykur
Hálft lime
2-3 jarðaber
Væn skvetta af gini
Sódavatn
Klakar


Sykurinn fer í glas og lime kreist út í. Þessu er hrært vel saman.


Jarðaberin eru skorin í sneiðar og sett saman við. Aftur er hrært vel en varlega.


Glasið er svo fyllt af klökum, gini skvett út í og síðan fyllt upp í með sódavatni.



Hrikalega ferskt og gott!

(Hugmyndin kemur héðan).

Aug 16, 2013

Föstudagshefðin.






Írskur kaffibolli eftir langa viku. 

Púðursykur, viskí, kaffi, rjómi og skvetta af súkkulaði.

Dásamlega hollt og gott. Tjah, fyrir sálina að minnsta kosti.

Aug 15, 2013

Fimm hlutir á fimmtudegi.




Ó, hvað lífið væri fallegt ef svona dásemdir væru fáanlegar á Íslandi. Hvítvín og kokteilar í dós. Það væri ekki verra ef hægt væri að grípa þetta með sér í matvörubúðinni. Eða kannski er þetta bara best geymt í útlöndum. Ekki vil ég verða dagdrykkjumanneskja. Að minnsta kosti ekki áður en ég fer á eftirlaun.



Nýjasti meðlimur fylgihlutasafnsins. Pastellituð perlufesti. Það er nú í lagi að leyfa sér aðeins fyrir haustið. Tjah, eða bara alltaf. 


Besta kombó í heimi. Rauðvín og söltuð graskersfræ. Maður verður að vísu dálítið þyrstur af fræjunum. Það er fyrir bestu að setja tappann ekkert í rauðvínsflöskuna aftur.



Ég gæti drekkt mér í svona pickleskrús. Almáttugur hvað þetta er gott. 



Uppskrift að ljómandi laugardagskvöldi. Rauðvín og doritosdýfa. Ég gæti snætt þetta í öll mál. Alltaf. Mmm.

Eigið ljúft fimmtudagskvöld mín kæru.