Showing posts with label pallíettur. Show all posts
Showing posts with label pallíettur. Show all posts

Mar 23, 2013

Árshátíð.



Ég er óneitanlega spennt fyrir kvöldinu - enda veit ég fátt skemmtilegra en að gera mig fína. Að vera fín og drekka vín - mín uppáhalds afþreying.

Jæja, þessar lappir raka sig víst ekki sjálfar.

Gleðilegan laugardag!

Jan 21, 2013

Reykjavíkursjopp.

Það er nú ekki á hverjum degi sem ég er stödd í Reykjavíkinni. Ég varð að sjálfsögðu aðeins að kíkja í búðir. En bara aðeins. Ég var mjög stabíll kaupalki þessa ferðina. Stóð mig með prýði þó ég segi sjálf frá.


Unaðsleg peysa úr Gyllta kettinum. Átti að kosta 9.800 en ég fékk hana á 3000 krónur. Of gott tilboð til þess að hægt sé að standast það. 



Gullfallegi jakkinn sem allir eru orðnir leiðir á að heyra mig tala um. Hann er loksins orðinn minn. Þökk sé einum yndislegum lesanda sem sendi mér línu og benti mér á hvar ég gæti keypt hann á 6000 krónur! 70% afsláttur - Guðrún Veiga slær ekki höndinni á móti slíku. Ó nei. Kærar þakkir til Hildar fyrir ábendinguna. 


Þetta var óvart. 50% afsláttur af L'oréal naglalökkum. Átti ég að ganga í burtu frá því? 



Það var hinsvegar nákvæmlega ekkert óvart við þessi kaup. Ég leitaði af þessu naglalakki út um alla borg. Fann það loks í Hagkaup í Smáralind. Ég græt af gleði yfir fegurð þess. Myndirnar gera því alls ekki nógu góð skil. Það má samt klikka á þær til þess að sjá lakkið betur.


Örlítið brot af naglalakkssafninu sem tekur orðið megnið af hilluplássinu á baðherberginu. Sambýlismanninum til mikillar gleði. 

Ég gerði nú nánast út af við hann um daginn þegar ég hóf að nota gluggakistuna í svefniherberginu okkar sem skóhillu. Mér fannst bara svo agalega góð hugmynd að raða nokkrum fallegum skópörum þar.

Hann var ekki á sama máli. 

Blessaður anginn. Á föstudaginn verður hann búinn að umbera mig í heil 7 ár.

Ótrúlegt ekki satt?

Jan 13, 2013

Pallíettujakkar.



Ég er alveg pínulítið skotin í þeim. Ég bara stenst með engu móti það sem glitrar á. Ég elska pallíettur næstum því jafn mikið og glimmer. 

Þessir jakkar fást hér og eru á útsölu á rúmlega 6000 krónur. 

Ég þarf svo að fara að græja eitt gott naglalakksblogg. Til þess að sýna ykkur nýju fínu lökkin mín. Neglurnar á mér eru bara í einhverju verkfalli þessa dagana. Þær eru pínulitlar og ljótar. Ég er viss um að sambýlismaðurinn hefur klippt eða nagað þær af mér meðan ég svaf. Allt til þess að koma í veg fyrir frekari naglalakkskaup. 

Talandi um naglalökk - ekki gleyma að skrá ykkur í gjafaleikinn. Passið bara að lesa vel hvernig á að taka þátt!

Jæja, ég er að fara að borða rjúpu. Já ég sagði rjúpu.

Það er alltaf eitthvað stórfurðulegt í matinn hérna þegar sambýlismaðurinn fær að ráða.