Showing posts with label gina tricot. Show all posts
Showing posts with label gina tricot. Show all posts

May 6, 2013

Gina Tricot.

Það er fátt annað sem kemst að hjá mér þessa dagana en að slefa yfir dönskum vefverslunum. Jú og ákveða hvernig rauðvín ég ætla að kaupa í fríhöfninni á leiðinni heim.

En fallegu fötin út um allt! Hjálpi mér allir heilagir. Eða allavega veskinu mínu. Og sambýlismanninum. Hann hafði einmitt orð á því í gær að hann ætlaði jafnvel að kaupa sér jakka úti. Ég brást hin versta við ,,JAKKA! Þú átt jakka!". 

Þetta var dálítið vandræðalegt augnablik. Ég veit ekki alveg hvaðan þetta kom en ég hikstaði lengi eftir að ég sleppti þessari setningu. Það á víst ekki að kasta steinum úr glerhúsi.

En Gina Tricot, kíkjum aðeins á hvað hún hefur að geyma.

 



 

 

Nú þarf ég bara að kaupa mér miða í Víkingalottóinu og landa þar góðri summu. Ekki vil ég að sambýlismaðurinn væflist um jakkalaus á meðan ég spóka mig í öllum nýjum fötunum mínum.

Mar 23, 2013

Árshátíð.



Ég er óneitanlega spennt fyrir kvöldinu - enda veit ég fátt skemmtilegra en að gera mig fína. Að vera fín og drekka vín - mín uppáhalds afþreying.

Jæja, þessar lappir raka sig víst ekki sjálfar.

Gleðilegan laugardag!

Mar 18, 2013

Að gera góð kaup á Facebook.

Ég hef ekki lagt það í vana minn að veita því sérstaka athygli þegar fólk er að selja fötin sín í gegnum Facebook. Hvort sem það eru vinir mínir eða ákveðnar síður þar sem einstaklingar auglýsa hluti til sölu.

Ó boj, hvað ég hlýt að hafa misst af miklu. Síðustu tvær vikur er ég búin að gera svo dásamlega góð kaup í gegnum Facebook að ég fæ sæluhroll við tilhugsunina.


Tilvonandi árshátíðarkjóllinn minn. Splunkunýr og með miðanum á.




Kápa frá RYK. Undursamlega fögur og hún lítur út eins og ný.


Ljómandi fínn blár blazer jakki. Nauðsyn í hverjum fataskáp. Ég á að vísu einn mjög svipaðan jakka en af einhverjum undarlegum ástæðum neitar hann að hneppast yfir minn mjúka og fagra maga. 

Fyrir þessar þrjár flíkur borgaði ég samtals 11.000 íslenskar krónur. 11.000! Ég er í svoddan sæluvímu að ég hef varla leitt hugann að því að það sé mánudagur í dag.

Facebook er nýja uppáhalds búðin mín.