Showing posts with label nei takk. Show all posts
Showing posts with label nei takk. Show all posts

Nov 29, 2012

Ekki kaup vikunnar.

Ég ætlaði nú að dekra pínulítið við mig og kaupa mér sjampó til þess að reyna að lífga aðeins upp á hárið á mér. Það er búið að vera í einhverju hálfgerðu lamasessi undanfarið.


Ég keypti þetta sjampó og næringu frá John Frieda. Þetta er auðvitað ekkert nýtt á markaðnum en ég notaði fyrir löngu einhverjar krulluvörur frá þessu merki og man ekki betur en mér hafi líkað nokkuð vel. Það var nú ekki raunin í þetta sinn. Þetta sjampó á að láta hárið líta út fyrir að vera þykkra og gefa því aukna fyllingu. Ég féll að sjálfsögðu fyrir þeim loforðum.


En því er nú heldur betur öfugt farið. Ég er búin að vera eins og ég sé með dauðan fugl á hausnum alla vikuna. Fyrst hugsaði ég ekkert út í að þetta gæti mögulega verið sjampóið, hélt bara að hárið á mér væri með meiri stæla en venjulega. En nei, ég notaði mitt venjulega sjampó í gær og hárið varð eðlilegt aftur. Eins eðlilegt og það getur orðið að minnsta kosti. Það lítur út eins og gamall strákofi þessa dagana og þetta bévítans sjampó bætti ástandið svo sannarlega ekki. 

Ætli ég þurfi svo ekki að kaupa mér sjampó á 200 kall úr Bónus næst. Sambýlismaðurinn fer nefnilega örugglega að skammta mér pening bráðum. Visakortið mitt er einmitt horfið úr úlpuvasanum mínum á einhvern undarlegan hátt - en ég hlýt að ná að tæla hann til þess að láta mig hafa það aftur. Hann hefur ekki hingað til staðist töfra mína.


Nov 22, 2012

Ekki kaup dagsins.


Ég hef brennt mig á því áður að kaupa eitthvað sem heitir Cappuccino fyrir Senseo-vélar. En á þessum pakka stendur stórum stöfum NEW RECIPE! Þannig að ég lét auðvitað freistast, fullviss um að þetta væri miklu betra en allar hinar tíu tegundirnar sem ég hef prófað af þessu í gegnum tíðina. Ó nei! NEW RECIPE - hvílík blekking! Þetta er piss. 


Hér má sjá viðbrögð mín við fyrsta sopanum (myndin er sviðsett). Mikil vonbrigði. Ekki það að ég hafi búist við því að fara að framleiða quality cappuccino með Senseo-vél. Ég bjóst nú samt við meiru. Þetta var dálítið eins og að drekka vatnið sem fólk lætur stundum renna í gegnum kaffivélarnar sínar til þess að hreinsa þær. Mæli ekki með að þið prófið. Nema að ykkur þyrsti í kaffi sem minnir á piss.