Jul 4, 2013

Fimm hlutir á fimmtudegi.


Ég er afar heppin með þessa tvo - bestu Guðmundar í heimi. Sambýlismaðurinn og pabbi.


Ég er að vinna í að koma upp einhverskonar myndavegg hérna á heimilinu. Þar koma doppurnar mínar að góðum notum.


Grillaðar pylsur - eitt af því besta sem sumarið hefur að geyma. Vel sprungnar og og dálítið brenndar. Namm.


Ég prentaði út stafrófið og þakti einn vegg í herbergi afkvæmisins. Þessar framkvæmdir vöktu litla lukku. Barnið gat ómögulega skilið af hverju ég vildi skreyta veggina með stöfum en ekki Spiderman.


Ég stal þessum ljómandi fína kolli úr barnaherberginu. Ég kom honum fyrir inni í stofu þar sem hann lífgar upp á tilveruna. Svo gulur og gleðilegur.

Eigið gott fimmtudagskvöld mín kæru.

No comments:

Post a Comment