Showing posts with label l'oréal. Show all posts
Showing posts with label l'oréal. Show all posts

Mar 27, 2014

Fimm hlutir á fimmtudegi.


Ég var látin vita af því í vikunni að pósturinn minn yrði ekki borinn út til mín lengur. Ástæða þess væri sú að póstkassinn hjá mér tæki hreinlega ekki við meiru. Ah, já - ég kíkti einmitt í hann síðast þann 15.desember síðastliðinn, áður en ég fór austur í jólafrí. 

Póstur hræðir mig. Maður veit aldrei hvað þessi bölvuðu umslög innihalda. Þetta er búið að liggja á borðinu hjá mér í þrjá daga núna. Þrír mánuðir af pósti. Allt enn óopnað. 


Ein af mínum bestu vinkonum var að koma frá útlöndum og færði mér þessar fínu kóknáttbuxur.

Kók á afar sérstakan stað í hjarta okkar beggja. Einu sinni fórum við tvær saman í bústað seinnipart á föstudegi. Við gripum meðal annars með okkur eina kippu af tveggja lítra kóki. Um hádegi á laugardag var allt kók í húsinu búið. 12 lítrar af kóki, já. Ofan í tvær meðalstórar manneskjur. Á innan við sólahring. 


Enginn sem stendur mér nærri fer til útlanda án þess að færa mér eitt spennandi í safnið. 



Dýrmæt eign. Áritaður persónulega til mín. Bara til mín. Frá henni. 


Það er fullkomlega eðlilegt að eiga tvö eintök af Radio Rapist Wrestler. 


Ég ræddi við ykkur um nýtilkomið kjálkavandamál í síðustu færslu. Ef ég geispa þá smell ég hálfpartinn úr kjálkalið. Mér skilst að þetta geti tengst því að ég er alltaf með fullan munn af tyggjói. Ég fæ mér aldrei bara eitt tyggjó. Ekki tvö, nei. Fjögur eða sex. Það er minn skammtur. 

Fólk sem þekkir mig tekur aldrei nokkurn tíma upp tyggjópakka að mér viðstaddri. 



Þið verðið að prófa Burger-inn í Hafnarfirði. 

Ég á alveg agalega erfitt með að bíða eftir mat. Bara eiginlega get það ekki. Ég tala nú ekki um þegar ég er það svöng að ég nánast íhuga að éta servíettuna utan af hnífapörunum á meðan ég bíð. 

Ef þið farið á Burger-inn þá er boðið upp á súpu og brauð á meðan beðið er eftir matnum. Ó, þegar afgreiðslukonan greindi mér frá þessu fyrirkomulagi. Almáttugur minn. Hún hefur sennilega orðið eilítið skelkuð við að sjá geðsýkislegan hamingjuglampann í augum mínum. 

Jæja. 

Ég er á Austurlandi í augnablikinu. Ætla að njóta þess í tæpan sólarhring til viðbótar.

Heyrumst fljótlega.

Mar 13, 2013

Empties.

Ég skoða mörg útlensk blogg. Þar eru margar stelpur duglegar við að skrifa svokallaðar Empties færslur. Þær fara þá til dæmis yfir snyrtivörur sem þær hafa klárað og segja sitt álit á þeim. Mér finnst oft skemmtilegt að lesa þetta - og hef of oft keypt eitthvað sem er mælt með innan bloggheima og að sama skapi forðast kaup sem fólk mælir ekki með.

Til þess að gera langa sögu stutta þá var ég að taka til inni á baðherbergi áðan og fann ágætis glás af tómum umbúðum. Þannig að ég ákvað að þetta væri hið fínasta tilefni til þess að herma eftir kollegum mínum í útlöndum.



Nivea sturtuskrúbbur: Ég keypti þennan skrúbb af því hann var á einhverju tilboði fyrir ekki svo löngu. Í stuttu máli þá elska ég hann ekki. Það eru alltof fá korn í sápunni - ef svo má að orði komast. Maður hefur það á tilfinningunni að þetta sé ekki að gera neitt gagn. Ég vill hafa skrúbba helst eins og það sé stálull á húðinni á mér. Ég hugsa að þetta verði ekki fyrir valinu aftur.


Kókosandlitsskrúbbur frá Inecto: Þessi skrúbbur var eiginlega ekki minn tebolli heldur. Ég keypti hann af því að mér finnst aðrar vörur úr þessari línu ágætar - jú og svo kostaði hann frekar lítið. Ég hef eiginlega það sama að setja út á þennan skrúbb og skrúbbinn frá Nivea. Hann gerir ekki nóg fyrir mig. En er örugglega alveg fínn fyrir suma. Ég myndi kannski kaupa hann aftur ef ég væri að leita mér að andlitsskrúbb sem væri ekki svakalega grófur.


L'oreal BB-krem: Ég var yfir mig hrifin af þessu kremi til að byrja með. Þetta krem gefur húðinni fallegan lit og þjónar tilgangi rakakrems um leið. En hrifning mín á þessari vöru hefur eiginlega dalað heilmikið. Mér fannst þetta frábært en núna finnst mér ég bara hálf undarleg í framan þegar ég klíni þessu á mig. Nei mig langar ekki í meira af þessu. Ég ætla að prófa eitthvað annað BB-krem næst.


Hyljari frá ELF: Þennan hyljara kann ég að meta. Hann hylur lærdómsbauga þrusuvel sem og bólur sem ég skarta oft á tíðum sökum sælgætisáts. Þessi er búin að endast mér síðan í lok nóvember og hann kostar ekki nema 400 krónur! Sem er gjöf en ekki gjald. Ég ætla svo sannarlega að kaupa mér annan svona. 

Þið getið pantað hann hér.


Aveda Pure Abundance Style Prep: Þetta er ein af mínum uppáhalds hárvörum. Ég hef keypt þetta sprey oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Það gerir ótrúlega mikið fyrir hárið á mér. Hárið á manni lítur út fyrir að vera miklu þykkra og meira en það er. Samt gefur spreyið ekki svona leiðinlega hárlakksáferð. Ég elska þetta sprey og mun halda áfram að nota það um ókomna tíð. 

Þið getið keypt það hér. Aveda sendir líka frítt út á land sem er ávallt stór plús.

Núna þarf ég augljóslega að fara í verslunarferð til þess að bæta mér upp það sem búið er.
.

Mar 4, 2013

MánudagsEbay.

Það er í alvöru komin mánuður síðan ég pantaði af Ebay síðast. Eða svona tæpur mánuður. Æ, hver er að telja?

Ég rifjaði allavega upp kynni mín við þennan stórvin minn í dag.


Obbósí. Það þarf ekkert að ræða þetta. Kannski er ekki runnið af mér síðan á föstudagskvöldið. Sumt bara stenst ég ekki. Það vitum við öll. 


Maskari, já. Sem fæst úti í næsta apóteki, ég veit það alveg. En hann kostaði mig bara tæpa 4 dollara á Ebay þannig að já. Svo fór sem fór. 


Annar maskari. Hvað hefur hún að gera við tvo maskara gætuð þið mögulega spurt? Nei, við því er ekkert svar. Ég þarf ekkert að nota þá báða í einu. Ég rakst bara á þennan fyrir tilviljun. Ég notaði hann alltaf fyrir nokkrum árum. Þegar ég var ung og áhyggjulaus. Hérna í gamla daga. 

Svo var hætt að selja hann á Íslandi og það var mér mjög erfiður tími. En ég get tekið gleði mína á ný því við munum sameinast aftur eftir fáeina daga.


Ó, þetta er alveg satt!

Nov 27, 2012

L'Oreal Miss Candy.





Allir þessir litir eru svo gleðilegir fyrir augað. Ég veit samt ekki hvort mig langar meira í snyrtivörurnar eða þessar bévítans frönsku makkarónur sem eru að þvælast á öllum myndunum! Ég hugsa að makkarónurnar hafi vinninginn - bumban er alltaf í fyrsta sæti.