Yes we do!
Showing posts with label neon. Show all posts
Showing posts with label neon. Show all posts
Feb 13, 2013
Jan 26, 2013
Instagram.
1. 2. og 3. Neglur úr vikunni sem er að líða. Ég hef ákveðið að hvíla bloggið á endalausum naglalakkspóstum. Instagram tekur við þeim í staðinn. Ég naglalakkaði mig ekki nema þrisvar í þessari viku - sem er sláandi sjaldan á mínum mælikvarða.
4. Ó, dásamlega sveitt pepperonipizza. Janúarmegrun er ekki eitthvað sem ég trúi á.
5. Sonurinn ræður hvað er í kvöldmatinn einu sinni í viku. Pönnukökur með sykri urðu fyrir valinu síðastliðinn miðvikudag.
6. Helvítis Nóa kropp með appelsínubragði. Ógeðslega gott og ég get troðið í mig heilum poka á ljóshraða.
7. Mæðginadagur. Við tókum okkur frí frá lærdómi og leikskóla og eyddum deginum úti í snjónum.
8. Neonbleikur klæðnaður - heiðarleg tilraun til þess að lífga upp á annars fölgráan janúardag.
9. Besta rauðvín í heimi. Ég fékk mér örlítið tár úr þessari flösku á fimmtudagskvöldið. Og í gærkvöldi. Ég er tilneydd til þess að klára hana í kvöld - enda má hún ekki skemmast.
Ykkur er velkomið að fylgjast með á Instagram, eins og ég hef áður bent á - notendanafnið er @gveiga85.
Gleðilegan laugardag!
Jan 24, 2013
Wanted.
Á morgun eigum við sambýlismaðurinn sjö ára sambandsafmæli.
Er það ekki alveg tilefni til þess að splæsa á sig einu skópari eða svo?
Jan 7, 2013
Neon.
Draumur í dós! Þetta grábölvaða eyðslubann mitt hefur nú staðið í rúmlega sólahring og það er nú þegar farið að valda mér líkamlegum sársauka.
Ég mun samt halda þetta út. Ég set þessu banni engin tímamörk - hver dagur án eyðslu er ákveðinn sigur fyrir mig. Áfram ég!
Subscribe to:
Posts (Atom)



















