Showing posts with label viðburðir. Show all posts
Showing posts with label viðburðir. Show all posts

Apr 8, 2014

Breiðholtsfréttir.


Ég eldaði í gærkvöldi. Mér þykir réttast að koma því á framfæri eftir að hafa rekist á fáeina áhyggjufulla lesendur um helgina. Einn sagðist oft á tíðum hafa íhugað að skilja eftir matarpoka við dyrnar hjá mér. Annar reyndi að sannfæra mig um að popp væri ekki matur. Það gekk auðvitað álíka vel og samræður við ljósastaur. Hafði nákvæmlega ekkert upp á sig. 

Áhyggjur af mér eru með öllu óþarfar. Fallegar en óþarfar. Ég er letihaugur sem nennir engri fyrirhöfn. Lýg í sjálfa mig að ég hafi engan tíma fyrir eldamennsku og ein dós af maísbaunum sé ljómandi máltíð. Tala nú ekki um ef ég galdra fram sósu með þeim. 

Máltíð í Ikea kostar líka agalega lítið. Maður drekkur bara sirka þrjá lítra af gosi með matnum, grípur með sér slatta af tannstönglum og stingur nokkrum pokum af frönskukryddi í vasann. Kemur svo gott sem út á sléttu. 


Ég fann einmitt hvítlauk í ísskápnum í gær sem ég hugsa að ég hafi keypt þegar ég flutti inn í október. Þá ætlaði ég aldeilis að vera síeldandi. Alltaf með gesti í mat og svífa um með svuntuna fyllandi á vínglösin þeirra. Bjóða upp á dýrindis osta í forrétt og læra að búa til souffle að hætti Gordon Ramsay. 

Nei, hingað hefur enginn komið í mat. Fyrir utan systkini mín sem komu í haust og svolgruðu í sig mexíkanskri kjúklingasúpu. Á meðan röfluðu þau yfir að ég hefði keypt ódýran gerviost til að setja út í súpuna og reyndu að fá mig til að játa að hvítlauksbrauðið væri frá Euroshopper. 


Ég er auðvitað best geymd alein í Breiðholti bara þegar einhverskonar át fer fram. Hver vill hafa þetta fyrir framan sig?


Ég mæli samt eindregið með súpunni sem ég eldaði í gærkvöldi. Þið finnið hana hérna. Ég keypti reyndar óvart kjúklingabaunir í stað linsubauna. Eins bætti ég spergilkáli við. Ljómandi góð súpa alveg hreint.


Ég fór á tónleikana með Bubba og Bó um helgina. Já þið sjáið rétt. Þetta er bakgrunnurinn á tölvuskjánum hjá mér. 

Ég var að reyna að útskýra fyrir mági mínum og tónleikafélaga hvernig það væri fyrir mig að sjá Bubba á sviði. Það gekk fremur brösulega. Hann íhugaði sennilega að kasta mér í hafið við Hörpuna þegar ég sagði honum að mér liði eins og ég væri að fara á tónleika með Metallica. 

Það má líka vera að ég hafi látið flakka að mér fyndist Bubbi myndarlegri en Ryan Gosling. Má vera.


Ég þarf að eignast svona pils. Hvar fæ ég tjullpils á Íslandi? Nei, það þýðir ekkert fyrir ykkur að koma með brandara um Prinsessuna í Mjóddinni. Ég er einu skrefi á undan ykkur þar og búin að kíkja. 

Jæja. 

Kaffi. Naglalökkun. Lærdómur.

Heyrumst.

Feb 21, 2014

Opnunarpartý LEVEL í Mosfellsbæ.

Í gær opnaði afar hæfileikarík stúlka verslun í Mosfellsbæ. Í verslunni selur hún sína eigin hönnun, ásamt fleiri gersemum. Fátæki námsmaðurinn átti satt best að segja eilítið bágt í kringum allar fallegu flíkurnar og hlutina.

Einn daginn. Ó, einn daginn. Þá verður heimurinn minn. Svona um leið og LÍN hættir að sjá mér farborða.


Verslunareigandinn og hönnuðurinn Elísabet Maren að afgreiða fyrsta viðskiptavininn.








Myndir eftir Siggu Soffíu fást í LEVEL.






Ánægðar mæðgur - Lísa Maren og Hrönn.

Ég bæði dáist að og ber gríðarlega virðingu fyrir fólki sem þorir að stíga skrefið og láta drauma sína rætast.
Það eru alltof fáir sem gera það.

LEVEL er staðsett í Háholtinu í Mosfellsbæ - þið verðið ekki svikin af ferð þangað.

Til hamingju með búðina þína Lísa mín. Hún er sannkölluð dásemd.

Heyrumst.