Jul 8, 2013

Lífið á mánudegi.

Í dag narraði ég sambýlismanninn í Ikea undir því yfirskini að okkur vantaði kerti. Bara nokkur kerti - fyrir haustið þið vitið.



Ef við ættum ekki bókaða ferð saman til útlanda á miðvikudaginn þá væri ég líklega orðin einhleyp. 

Mér til varnar þá var útsala. Helvítis útsala.


Ég hef fengið ótal fyrirspurnir um hvar ég kaupi rörin sem sjást stundum á myndunum mínum. Ég kaupi þau sem sagt í Tiger - 16 rör á 400 krónur. Ef maður kemst ekki í Tiger þá má líka panta allskonar rör hjá Íslenzka Pappírsfélaginu

Jæja, ég ætla að fara að baða mig í rigningu og rauðvíni hérna í Reykjavík.

Heyrumst.


1 comment:

  1. Var ekki búin að sjá rörin í Tiger - takk fyrir að benda á þau þar!

    ReplyDelete