Showing posts with label kennslumyndbönd. Show all posts
Showing posts with label kennslumyndbönd. Show all posts

May 11, 2014

Hlébarðaneglur


Ekki gat ég leyft mér þann munað að vera á galeiðunni í gærkvöldi. Ég þurfti að vakna fyrir allar aldir vegna vinnu og föndraði því við neglurnar á mér á meðan ég horfði á Júróvisjón. Svona í stað þess að stunda glasalyftingar og vera orðin þvoglumælt yfir stigagjöfinni eins og undanfarin ár. 


Ég var að dunda mér með þennan stórgóða naglapenna sem ég nældi mér í héðan um daginn. Útkoman varð mitt uppáhalds mynstur. Hlébarða. 


Ég byrjaði á að lakka allar neglurnar í einum lit.


Ég gerði svo doppur í öðrum lit. Þær þurfa ekki að vera fallegar - það nægir að dúmpa penslinum bara hingað og þangað. 


Síðan teiknaði ég sviga í kringum hverja doppu.





Ég notaði þetta myndband mér til stuðnings í þessum framkvæmdum. 

Jæja. Ég ætla fá mér rauðvín og pakka niður. Leiðin liggur heim í Breiðholtið á morgun.

Heyrumst.

Apr 13, 2014

Sunnudagsverkefnið: kattaraugu.


Mér finnst voðalega gaman að mála mig. Ég geri það ekkert alltof oft af því yfirleitt er ég alein að þvælast um á brókinni í Breiðholti - sótbölvandi skólabókum og ritgerðarskrifum. 

Síðustu tvö ár eða svo hef ég verslað mikið við E.L.F á Íslandi. Merkilega ódýrar snyrtivörur miðað við gæði. Vegna þess hversu oft nafn mitt og bankanúmer hefur birst á skjánum hjá þeim var nálgast mig fyrir stuttu og ég beðin um að prófa nokkrar vinsælar vörur.

Ég stökk auðvitað á það tilboð eins og einhver hefði boðið mér Bill Spencer úr Glæstum vonum á silfurfati. 



Þessi eyeliner kostar 500 krónur. Já. Ég sagði fimmhundruð! Mitt níska námsmannahjarta tekur kipp við það að skrifa þetta. Þið finnið hann hérna - alveg hreint ljómandi góður og svo sannarlega ekkert  síðri en margir aðrir sem ég hef prófað. 

Ég nota eyeliner mikið. Svo fljótlegt, fínt og einfalt dæmi (að því gefnu að ég sé ekki komin í glas).

Í dag æfði ég mig í svokölluðum kattaraugum.



Ég er alveg mannleg þegar kemur að speglamyndum. Þrátt fyrir gífurlega þjálfun þá heppnast þær ekkert í öllum tilvikum.



Látið sem þið sjáið ekki varaþurrkinn.


Ég notaðist við aðferðina sem sýnd er í þessu ágæta kennslumyndbandi. 

Ykkur er svo óhætt að setja ykkur í stellingar fyrir morgundaginn. Hann inniheldur meðal annars Oreokex, hnetusmjör og Betty vinkonu mína Crocker. 

Heyrumst.

Jun 10, 2013

Ætt glimmer.

Ég er í skýjunum með að hafa fundið leið til þess að borða glimmer án þess að eiga það á hættu að vera lögð inn á stofnun fyrir geðsjúka.

Glimmer búið til úr sykri og matarlit. Vúhú. Nú get ég stráð glimmeri yfir allt sem ég borða.


Til þess að búa til einn skammt í einum lit þarf:

1/4 bolli af grófum sykri
2-3 dropar af matarlit

Sykurinn er settur í litla skál og matarliturinn þar saman við. Síðan er þetta hrært vel og vandlega þangað til allur sykurinn hefur tekið lit. Ég gat auðvitað ekki látið einn lit nægja. 



Sykurinn er síðan settur á ofnplötu. Ég bjó til þrjú ,,hólf" úr álpappír svo ég gæti bakað þetta allt í einu. Þetta fer síðan inn í heitan ofn á 150° í sirka 10 mínútur. 




Út úr ofninum kemur síðan þessi dásamlegi glitrandi sykur í öllum regnbogans litum. Myndirnar gera þessu fíneríi alls ekki nógu góð skil.

Sykurinn er síðan hægt að nota til þess að skreyta kökur eða borða einstaklega gleðilega skál af Cheeriosi. Fyrir fólk eins og mig, sem drekkur meira en það bakar, er gráupplagt að nota sykurglimmerið til þess að skreyta kokteilglös.




(Hugmyndin kemur héðan).

Apr 9, 2013

Magnað húsráð.

Þeir sem þekkja mig vita að ég er einstaklega óþolinmóð. Ég er svo óþolinmóð að ég elda aldrei neitt sem innheldur hvítlauk þrátt fyrir að ég sé mikill aðdáandi þessa ljómandi góða lauks.

Ég bara get ekki skrallað hvítlauk. Eða segir maður flysja? Ég hata það. Ég hata að þurfa að plokka pikkfast skrallið af hverjum geiranum á fætur öðrum. Svo eru kannski notaðir tíu geirar í eina uppskrift. Almáttugur, nei takk. Og hvítlaukslyktin sem kemur af nöglunum á manni, oj bara!

Ég hef fundið lausn á þessu hræðilega vandamáli.


Í þessar framkvæmdir þarf krukku með loki.



Hvítlaukurinn er rifinn í sundur og settur ofan í krukkuna. Lokið er sett á og krukkan hrist brjálæðislega í 10-20 sekúndur.



Eftir góðan hristing skilar krukkan af sér kviknöktum hvítlauksgeirum. Alveg hreint dásamlegt kraftaverk! 


Hérna er myndband sem sýnir nákvæmlega hvernig þetta er gert.

(Hugmyndin kemur héðan).

Mar 5, 2013

Top Knots.


Það kemur sér ansi vel að hafa snúðana á hreinu þegar hárið á manni lætur eins og skrípi. 

Þið finnið allskonar leiðbeiningar og kennslumyndbönd hérna.

Feb 4, 2013

Snúður án sokks.

Ég þreytist ekkert á að leita af leiðum til þess að gera flottan snúð í hárið á mér - án svamps og helst án þess að þurfa að skemma fleiri sokka. Ég hef gert ítrekaðar tilraunir með þessa bévítans sokkasnúða eins og lesa má betur um hérna.


Í þennan snúð þarf ekkert nema hár! Kennslumyndbandið er hér

Ég ætla að prófa og bind miklar vonir við að þessi snúður leysi öll mín vandamál.

(Myndinni er stolið héðan).