Aug 12, 2013

Nostrað við innpökkun.


Ég hef fáránlega gaman að því að pakka inn gjöfum. Skrifa kort, skreyta og nostra við pakka - ég fæ undarlega mikinn unað út úr þessu öllu. 

Fullkomnunaráráttan á það reyndar til að þvælast örlítið fyrir mér. Bara örlítið. Stundum pakka ég sama pakkanum inn allavega fimm sinnum, tæti pappír í allar áttir og fer næstum að grenja.


Ég pakka yfirleitt inn í mjög látlausan pappír. Það er nefnilega langskemmtilegast að skreyta slíka pakka.


Falleg límbönd úr Tiger sem nýta má í allskyns skemmtilegheit. 


Fljótlegt, fallegt og dásamlega einfalt. Ég var reyndar bara að pakka inn gjafakorti í þessu tilviki (já ég pakka þeim líka inn). En þessi hugmynd virkar alveg á pakka af öllum stærðum og gerðum.




Mér finnst líka sérstaklega skemmtilegt að klæða mig í kjól og fara í veislu.

Veislur eru mitt uppáhald.


Aug 10, 2013

Zucchinipizza.

Ég er ekki mikil brauðæta. Aðallega vegna þess að meltingarfærin í mér eru eins og í níræðu gamalmenni. Ég var því ákaflega hamingjusöm þegar ég rakst á uppskrift að svokallaðri zucchinipizzu um daginn.

Ég prófaði þennan unað í gærkvöldi og hafði þessa uppskrift til hliðsjónar.


Ég skar eitt zucchini í sneiðar - það er best að hafa þær frekar mjóar.


Sneiðarnar eru steiktar uppúr olíu við vægan hita þangað til að þær taka örlítinn lit. Það er einnig bráðnauðsynlegt að krydda duglega með salti og pipar.


Áleggið.


Þegar ég hafði lokið við að brúna zucchinið á pönnunni raðaði ég sneiðunum á ofnplötu. Síðan skvetti ég örlítilli pizzusósu á þær, áleggi og osti. Að lokum fóru þær í ofn þangað til osturinn hafði bráðnað.


Voilá - þetta var hrikalega gott!


Sambýlismaðurinn var ekkert sérstaklega hrifinn af þessu uppátæki og gerði uppreisn. Það var því tvírétta hérna í gærkvöldi. Hin hefðbundna hveitiklessa og zucchinipizza.

Mín pizza var svo sannarlega ekki síðri. Ég mæli eindregið með því að þið prófið.

Aug 9, 2013

Dancing in the Rain.


Elsku stígvélin mín sem ég fékk á 500 kall í Húsasmiðjunni. Sambýlismanninum finnst þau ekki falleg. Vægt til orða tekið. Hann hefur meira að segja reynt að fela þau fyrir mér tvisvar. 

Feluleikinn stundar hann af því að hann þorir ekki að láta stígvélin gossa í ruslið. Einu sinni henti hann nefnilega skóm af mér - án leyfis nota bene. Ég er nokkuð viss um að hann gerir þau mistök aldrei aldrei ALDREI aftur. Afleiðingarnar, maður lifandi.



Aug 8, 2013

Fimm hlutir á fimmtudegi.




Ég skráði mig í klúbb um daginn - Kaffiklúbbinn nánar tiltekið. Í dag fékk ég síðan ilmandi sendingu af dásamlega góðu kaffi. Hægt er að velja um í hvaða formi kaffið kemur - baunir, malað eða púðar. Stórskemmtilegt alveg hreint.


Ég ætti að fá einhverskonar verðlaun fyrir sjálfsþurftarbúskap. Ekki nóg með að hér sé veitt í matinn þá ræktum við jarðaber af miklum móð. Ég hef að vísu manninn á neðri hæðinni grunaðan um að vera að éta uppskeruna mína - en það er önnur saga.


Ég hef horft á Glæstar vonir nánast frá upphafi. Það eru einhver 20 ár. 20 ár! Almáttugur. Það er nota bene mjög erfitt fyrir mig að viðurkenna að ég muni 20 ár aftur í tímann. Fjandinn. 

En burtséð frá því að ég sé að verða eldri borgari þá elska ég Bill Spencer. Hann er alveg delissíjös. Ég gæti bara smurt honum á kexköku og já. Namm.



Ég er afar veik fyrir hverskyns naglaskrauti. Einnig er ég mjög veik fyrir glimmeri. Og afskaplega veik fyrir öllu sem kemur í svona litlum og sætum umbúðum. Af þeim sökum gat ég ómögulega staðist þessi kaup.


Kvöldinu ætla ég að eyða með þessum haug. Ég þarf að fara yfir og henda. Sambýlismaðurinn er að gera sér vonir um að þessi tiltekt þýði að ég sé loksins læknuð af þessari naglalakksmaníu sem hrjáir mig. Hann má halda í vonina eitthvað áfram blessaður.

 Ég er bara að rýma til fyrir nýjum litum - það er nú einu sinni að koma haust.

Heyrumst.

Næturbrölt.


Ég hef þann hryllilega ávana að brölta um á næturnar. Með brölti á ég við að ég vakna 2-3svar á nóttunni, fer fram, kíki í tölvuna, í ísskápinn, aðeins í símann og fer svo aftur upp í rúm. 

Í sumar hefur þetta bölvaða vesen versnað til muna. Núna vakna ég klukkan rúmlega þrjú að nóttu og fer bara ekkert að sofa aftur. Ég hangi í tölvunni í sirka einn og hálfan tíma - eða þangað til að ég er orðin svöng og þá fer ég og fæ mér hafragraut. Klukkan hálf fimm! Eins og ekkert sé eðlilegra.

Baugarnir eru farnir að minna á glóðuraugu og ná orðið langleiðina niður að geirvörtum. 


Hafragrautur fullur af chiafræjum fyrir minn vansvefta heila.


Ég er sybbin. Ó, svo sybbin.

Aug 7, 2013

Wishbone.




Fæst á Ebay - hér.

Ég splæsti einu svona stykki á mig gærkvöldi - kostaði rúmlega dollara. Svo gott sem gefins í mínum bókum. Það hefði nú bara verið kjánalegt að sleppa því að kaupa það. 

Ég er eiginlega búin að fá nóg af hrossalegum statement hálsmenum í bili. Bara í bili samt. Ég ætla að skipta þeim út fyrir fíngerðara glingur í dálitla stund.

Mig langar líka í fíngerða hringi. Svona örmjóa. Og armbönd.

Mikið er ljómandi að sambýlismaðurinn er að vinna fram á kvöld.

Bara ég og Ebay. Ebay og ég.