Mig langar alltaf í eitthvað nýtt. Meira glingur, fleiri töskur og aldrei aldrei mun ég eiga nóg af naglalökkum. Ég hugsa að ég geri nú vel við mig og panti mér eins og eitt naglalakk. Eða tvö. Ég er líka mjög æst í þetta keðjuhálsmen. Kostar bara tólf dollara. Er það ekki alveg sáralítið?
Ég eyddi ekki peningum í áfengi né sjómannadagsball í gærkvöldi. Ég á það inni að leyfa mér aðeins.
No comments:
Post a Comment