Aug 6, 2013

Megrandi millimál.

Eftir langa og rjómalagaða helgi er bráðnauðsynlegt að koma aðeins niður á jörðina á þriðjudegi. Ég geri svo sem fastlega ráð fyrir því að ég verði farin að baða mig í rjóma og rauðvíni aftur á morgun eeennnn - er á meðan er. 




Túnfiskur, rauðlaukur og kotasæla. Fullt af svörtum pipar og örlítil svetta af sítrónupipar.


Ókei, kannski ekki það girnilegasta sem ég hef gætt mér á yfir ævina. En þetta er gott.

Lofa.

Það besta.




Það er ekkert í heiminum sem jafnast á við að lúra hjá þessum litla kjöthleif. Svo yndislega hlýr og mjúkur. Hann er líka dásamlega loðinn á bakinu og ég veit fátt notalegra en að nugga nefinu í litlu hárin hans.

Vonum samt hans vegna að þessi hár fylgi honum ekki fram á fullorðinsár.

Aug 5, 2013

Veitt í matinn.


Aldeilis góður árangur hjá sambýlismanninum eftir stutta veiðiferð. 



Nýveiddur silungur löðrandi í teriyakisósu og púðursykri. Þvílíkt sælgæti!





Þetta fer síðan inn í ofn í sirka korter.


Dásamleg máltíð. 

Það er líka ansi gott að eiga einhvern sem getur veitt í matinn. Þá þarf ekki að kaupa mat . Ég get auðveldlega lifað á silungi eitthvað áfram. Sem merkir að ég get eytt peningum í eitthvað annað. Bless eyðslubann.

Stefnumót við Ebay í kvöld? 

Ó, ég er nú hrædd um það.

Aug 3, 2013

Leður.



 

Mig langar svo agalega mikið í flottan leðurjakka. Hvar fæ ég einn slíkan? Hann þarf líka helst að vera ókeypis.

Eyðslubannið, þið vitið.

Aug 2, 2013

Purple Haze.


Ég er agalega hrifin af þessu maxipilsi sem ég keypti á markaði á Spáni. Það átti að kosta tuttugu evrur en ég gekk í burtu með það fyrir heilar þrjár evrur. Þá var sölumaðurinn búinn að bölva mér duglega og sagðist aldrei hafa lent í eins erfiðum kvenmanni. Á endanum kastaði hann eiginlega í mig pilsinu og gargaði á mig Icelandic Bandita. 

Sambýlismaðurinn stóð álengdar og vonaði að jörðin myndi gleypa sig. Honum finnst það sérstaklega átakanleg lífreynsla að fylgjast með mér prútta. 



Aug 1, 2013

Fimm hlutir á fimmtudegi.




Dimmuborgir við Mývatn. Þarna verða allir að koma - þvílíkt umhverfi!


Fallegar stjúpur í skemmtilegum stígvélum.


Ég er ákaflega hrifin af fjólubláu þessa dagana. Ég þarf að læra að búa til krækiberjavín - er það ekki fjólublátt? 



Þessir duttu inn um lúguna hjá mér á meðan ég var í útlöndum. Þökk sé Ebay að sjálfsögðu. Mig var búið að langa í þá lengi og stóðst ekki mátið þegar ég las þetta blogg. Parið var á tæplega 1200 krónur. Ég læt það nú alveg vera.



Ekki komum við áfengislaus að utan. Ó, nei. Við keyptum meðal annars þessa stórglæsilegu vodkaflösku sem inniheldur ætar gullflögur. Það er kanilbragð af vodkanu og ég er búin að vera æsispennt að smakka. Sambýlismaðurinn leyfir mér hinsvegar ekki að opna helvítis flöskuna því hann segir að ég klári allar flöskur sem ég byrja á. 

Það er auðvitað bölvaður þvættingur. 

Eigið gott fimmtudagskvöld mín kæru og góða helgi þið sem hefjið helgina í kvöld.