Þessi ó svo fagri böggull beið mín á pósthúsinu í morgun. Ekki sá fyrsti á þessu ári og heldur ekki sá síðasti. Ó nei. Ég á annan svona einhversstaðar á leiðinni yfir höfin. Þessi innihélt meðal annars:
Ekki það að ég hafi nokkurn einasta tíma til að lesa neitt annað en skólabækur. En fallegar eru þær. Ég elska bækur. Ég vildi að það væru komin jól þannig að ég gæti eytt fáeinum gæðastundum með þeim. Ég skammast mín ekkert fyrir Amazonfíkn mína. Bækurnar þar eru nánast gefins miðað við á Íslandi. Þannig að þessi eyðsla er ekki einu sinni til umræðu.
No comments:
Post a Comment