Hér var kúrt nánast fram að hádegi sökum veðurs. Já og það hefur heldur ekki verið haft fyrir því að ryðja götuna okkar þannig að við dúsum líklega hérna inni eitthvað fram yfir helgi.
Mér var ekkert boðið í þetta kúr. Samkvæmt syni mínum tek ég of mikið pláss undir sænginni og stel öllum hitanum. Þannig að ég hélt mig hinu megin í rúminu og fylgdist öfundsjúk með þeim feðgum knúsast.
No comments:
Post a Comment