Dec 16, 2012

Laugardagsgleði.


Þessi mynd segir allt sem segja þarf um minn ó svo gleðilega laugardag. Sunnudagurinn stefnir í að verða jafn góður. Ég er rosalega leiðinlegur sjúklingur. Og ákaflega erfið í sambúð á meðan veikindi standa yfir. Ég veltist um í sjálfsvorkun og volæði og finnst ekkert sjálfsagðara en að sambýlismaður og sonur stjani við mig eins og drottningu. 

Sem þeir gera ekki. Sambýlismaðurinn er yfirleitt ekki lengi að finna sér eitthvað að gera utan heimilisins um leið og ég byrja að væla. Og sonurinn hefur sérstaka hæfileika í að hunsa mig. 

Já hér er heldur betur kátt í höllinni. Vika til jóla og ég er ekki búin að baka eina æta sort af smákökum. Það er eins gott að móðir mín eigi nóg til að gefa með sér!

No comments:

Post a Comment