Dec 18, 2012

Taugaáfalli frestað.

Til þess að hindra að maður fái taugaáfall sökum lasleika korter í jól þá kaupir maður sér skó.



Það er eitthvað við þessa skó sem tælir mig. Ég er samt eins og selur á svona háum hælum. Og ég á nákvæmlega engin föt sem mögulega passa við þessa skó. En ég gat ekki staðist þá. Bara alls ekki. Ég á þá hvort sem er skilið. Ég er lasin.

Það er mjög líklegt að móðir mín afneiti mér þegar hún sér þennan nýja skóbúnað. 

Ég keypti þá hér. 5000 kall. Svo gott sem gefins.

No comments:

Post a Comment