Ég fer auðvitað ekki ónaglalökkuð út úr bænum. Aldrei í lífinu. Ég gerði tilraun til þess að mála leopardmynstur á neglurnar í gærkvöldi. Það tók svo fjári langan tíma að ein nögl var látin duga í þetta sinn.
Sambýlismaðurinn elskar að ferðast með mér. Ég pakka alltaf niður eins og við séum á leið í margra ára útlegð á eyðieyju . Svo læt ég hann líka burðast með gullfallegu blómaferðatöskuna mína út um allt. Það kann hann svo sannarlega að meta.
Ég legg nú ekki upp í langferð án kaffibrúsans. Ekki að ræða það. Hvað ef við myndum festast einhversstaðar í marga klukkutíma - kaffilaus og allslaus? Það væri alveg hræðilegt.
Þetta er ég. Að vinka ykkur bless.
Ég veit ekki hversu vel ég næ að sinna blogginu yfir helgina. Ég veit ekki einu sinni hvort ég komist á netið. Ég notast þá við símann í versta falli - það á að vera hægt að blogga úr honum. Mínir feitu puttar og snertiskjárinn eru reyndar alls ekki góðir vinir!
Jæja,
bless bless.
DJÖFULL ER ÞETTA FLOTT NÖGL
ReplyDeleteég ætla að gera svona næst, næst. komin með plan fyrir næstu! (velvet límmiðarnir koma þar við sögu)
kv. sigga
úúú eg a einmitt lika limmiða frá ykkur sem eg á eftir að pròfa. tek þá fyrir næst! ;-)
ReplyDelete