Jan 2, 2013

Draumórar.













Það er eitthvað við þessi veski sem fær hjarta mitt til þess að slá talsvert hraðar. Sérstaklega þetta gula. 

Ég smellti mér auðvitað á Ebay og þefaði upp eina svona gula gersemi. Rúmlega 200 þúsund íslenskar krónur. Ég lokaði Ebay að sjálfsögðu í snarhasti. Með tárin í augunum. 

Ég er búin að reyna að sannfæra sambýlismanninn um að sleppa því bara að fara í sumarfrí í sumar. Einnig er ég búin að bjóðast til þess að borða bara núðlur næstu mánuði. Ég er líka búin að lofa að kaupa mér aldrei ALDREI neitt aftur og vera ótrúlega ódýr í rekstri. Ég lofaði líka að vera góð við hann. Alltaf. Að eilífu.

En hann hlustar ekki á mig, bölvaður.

Ekkert Chanelveski fyrir mig. Aumingja ég.

No comments:

Post a Comment