Jan 22, 2013

Mittistöskur.








Ég væri nú alveg til í eina svona gersemi fyrir sumarið. Það má til dæmis kaupa svona hér - á 14.990 krónur.

Ég hugsa að ég leiti nú á náðir herra Ebay stórvinar míns ef ég fjárfesti á annað borð í svona tösku. Ég er ekki alveg tilbúin að punga út 15.000 kalli fyrir mittistösku.

Sambýlismaðurinn tæki mig líka aldeilis í karphúsið ef ég myndi voga mér. 

Best að hafa það á hreinu svona áður en einhver hringir í Kvennaathvarfið að karphúsið hans felst ekki í líkamlegu ofbeldi. Ó nei. Helsta vopn sambýlismannsins er svokölluð silent treatment eða þögul meðferð eins og það væri kallað á íslensku. 

Þessi þögn hans stendur nú að vísu aldrei lengi yfir. 

Enda er ég töfrandi með eindæmum og hef doktorsgráðu í smjaðri sem enginn fær staðist. 

4 comments:

  1. Gaman að sjá tösku frá okkur á þessum skemmtilega lista :)
    Langar að benda á að mittistaskan er íslensk hönnun frá BRAVE og eru perlurnar handsaumaðar á töskuna og hún mjög vönduð í alla staði.
    Bestu kveðjur,
    DUSTED
    www.dusted.is

    ReplyDelete
  2. ó ég efast alls ekki um gæði töskunnar. vissi samt ekki að hún væri íslensk hönnun! :)

    ég væri örugglega löngu búin að freistast til þess að kaupa hana ef það myndi ekki ganga af sambýlismanni mínum dauðum! ;)

    takk fyrir að lesa.

    -gveiga

    ReplyDelete
  3. http://www.facebook.com/photo.php?fbid=10151270670199261&set=a.10151167003484261.466298.82340329260&type=1&theater

    ReplyDelete