Jan 10, 2013

Naaaaglalöööökk!

Þá eru elskurnar mínar komnar í hús. 60 stykki - takk fyrir. Lenti í örlitlu stappi við tollinn en ég er svo töfrandi persónuleiki að það nennir enginn að standa í veseni við mig.

Þið finnið þau öll hérna - á feisbúkksíðu bloggsins. Albúmið heitir Naglalakkssjoppan. Níu tegundir og lakkið kostar 800 krónur stykkið. Þar sem ég er landsbyggðarkona sem hatar sendingakostnað heitt og innilega, þá sendi ég þau að sjálfsögðu frítt hvert á land sem er.


Hérna er eitt sem ég var að prófa áðan. Ég dó úr ást um það bil átta sinnum á meðan ég smurði þessu á neglurnar á mér.

Ég er alveg brjálæðislega æst yfir þessu. Ég er í naglalakkssæluvímu. Ó svo verð ég að vera eins og allir aðrir bloggarar og hafa gjafaleik. Naglalakksgjafaleik!

Fjúff, ég þarf eitthvað róandi. 

Rauðvín - já ég ætla að fara að kaupa mér rauðvín. Það er nú næstum komin helgi!


No comments:

Post a Comment