Ó, ég læt mig dreyma. Ég myndi ekki slá höndinni á móti því að hafa smá Sex and the City brag á mínu lífi. Það er þó nokkuð ólíklegt að það gerist á meðan ég bý á Reyðarfirði.
Í þessum skrifuðu orðum er ég verulega mygluð og varla mönnum bjóðandi. Ég er með maskara langt niður á kinnar - nei ég nennti bara alls ekki að þrífa hann af í gærkvöldi. Hárið á mér er spikfeitt og ætti helst heima á einhverjum sem býr í hjólhýsi. Það er samt ekki feitt af skít sko - höfum það á hreinu. Ég smurði kókosolíu í það áður en ég fór að sofa. Ég er í sitthvorum sokknum, ljótum náttbuxum og gömlum bol af sambýlismanninum.
Ekki mjög í anda Sex and the City.
Þær hefðu ekki látið sjá sig dauðar eins og ég lít út núna.
No comments:
Post a Comment