Feb 8, 2013

Föstudagshamingja.

Ótrúlega fallegur föstudagur í dag. Mér fannst alveg tilvalið að skella mér í sumarkjól, henda skólabókunum til hliðar og njóta lífsins um stund.


Voruð þið nokkuð búin að gleyma mér? Það er liðin meira en vika frá síðustu speglamynd.


Sumarkjóll og kósýpeysa - það er jú ennþá skítkalt úti.



Eins og þið sjáið þá var agalegt fjör hjá mér. Alein heima og skellihlæjandi að taka speglamyndir af sjálfri mér.

Mjög eðlilegt.

(P.S. Ég held ég sé búin að laga kommentakerfið - nú á að vera hægt að skilja eftir komment að vild án þess að þurfa að fara í gegnum einhverjar stafaþrautir fyrst!)

4 comments: