Feb 11, 2013

Instagram.

Nokkrar myndir úr Instagram-gleði síðustu daga. Ég er líklega helst til virk á Instagram - ég er að reyna að hemja mig. Ykkur er velkomið að finna mig þar - notendanafnið er gveiga85. Ég pósta samt held ég aðallega speglamyndum og naglalakki. Ég er einnig dálítið dugleg að mynda rauðvínsdrykkju mína.

Ég ætti kannski að hætta því. Ég vil alls ekki að Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir á Vogi hafi samband við mig. 

Ókei, Instagram.

1. Dásamlega fallegu Mariah Carey OPI naglalökkin mín. Ég gat ekki bara prófað eitt í einu. Ég þurfti að setja þau öll á mig um leið.
2. Dálítið meira naglalakk. Og glimmer, að sjálfsögðu. 
3. Bláa glimmerlakkið úr Mariah Carey línunni. Unaðslega fallegt. Algjör draumur.
4. Ég er gríðalega fjölhæf. Ég get tekið myndir af nöglunum á mér og keyrt um leið.
5. Ég er búin að finna mér sumarvinnu. Ég ætla að leigja pylsuvagn og hanga á öllum útihátíðum í sumar.
6. FöstudagsGuðrún. 
7. Fallegi hrafninn minn. Sambýlismaðurinn kann að gleðja.
8. Ég er agalega hrifin af þessu glingri. Fæst hér.
9. Ég át yfir mig af Nóa kroppi og lagðist niður til að deyja. 

Ég á rosalega erfitt með að læra hvað er hæfilegt magn af Nóa kroppi. Ég borða undantekningarlaust yfir mig af því og læri aldrei af mistökunum.

Helvítis Nóa kropp.

No comments:

Post a Comment