Mar 20, 2013

Nýtt hár.

Ég er búin að horfa alltof mikið á Private Practice undanfarið. Ég hef legið yfir þessum þáttum á hverju einasta kvöldi síðan í janúar. Mér til varnar þá hafði ég aldrei séð þessa þætti - þannig að ég er að horfa á þá í fyrsta skipti og á þess vegna mjög erfitt með að slíta mig frá þeim. Ég meina hafið þið séð Sam? Óóó, halló hot piece of ass!



Að sjálfsögðu tókst mér að fá fagurrauða hárið hennar Kate Walsh (Addison) á heilann. Og þegar ég fæ eitthvað á heilann þá er því ávallt hrint í framkvæmd. 


Ég var svo hoppandi kát með nýju klippinguna að ég splæsti á míg nýjum varalit líka. Það er ekkert hægt að skarta nýju hári í bland við gamlan varalit.




Speglamyndir fyrir alla heimsbyggðina. Já ég er dálítið skotin í sjálfri mér í dag. 

4 comments:

  1. Ég er í sama pakkanum, hafði aldrei séð þessa þætti og er núna föst við skjáinn, á seríu 2 :)
    Æðislegt á þér hárið!!!
    -Heba

    ReplyDelete
    Replies
    1. úff ég er sko komin í seríu 6 - og er geðveikt öfundsjúk að þú eigir svona mikið eftir, hahaha!

      Delete
  2. hvað meinarðu hafðirðu aldrei séð þá?! hverskonar djöfulsins.....!
    en gott að þú ert búin að fá vit og farin að horfa á góða þætti og mergjaðslega geggjað hárið þitt.. vá! ég eeeelska rautt hár.

    ReplyDelete
    Replies
    1. æh, ég fékk ógeð eftir seríu 107 af greys þannig að ég nennti ekki meira læknadrama. ég sá fyrstu þættina af PP en svo hætti ég að horfa. eeeeeennn núna elska ég þá. ó mæ.

      og takk. ég elska líka rautt hár! ;-)

      Delete