Mar 19, 2013

Costa del Reyðarfjörður.

Það er vægast sagt ömurlegt veður úti. Ég á mjög auðvelt með að verða frekar tæp á geði í svona veðri. En ekki í dag - í dag bjó ég bara til mína eigin sólarlandastemningu. Tjah, mínus áfengið. Það er bannað á þriðjudögum.






Það er svo sannarlega allra meina bót að setja matinn sinn í örlítið fallegri búning en venjulega. 

Ég er að minnsta kosti ennþá stráheil á geði. Ennþá já. Ef þetta veður verður aftur á morgun þá fer vænn slurkur af vodka út í appelsínusafann, andskotinn hafi það!

No comments:

Post a Comment