May 28, 2013

BananaKókosÞeytingur.


Ég er ekkert alltof dugleg við að mixa mér einhverskonar þeytinga. Nema að þeir megi innihalda áfengi. Þá er ég tilbúin til þess að þeyta eins og vindurinn.


Ég skellti þó í einn óáfengan í dag og hann smakkaðist alveg hreint dásamlega. Það sem fór undir töfrasprotann var:

Einn frosinn banani
Væn skvetta af létt-kókosmjólk
Safi úr hálfu lime

Ókei, síðan fór ööörlítið af sykri. Bara nokkur korn. Pínulítið. Varla til að tala um.


Þessu er leyft að hrærast vel og lengi - þangað til blandan verður mjúk og rjómakennd.


Ótrúlega ferskt og gott. 

2 comments:

  1. heeey hvar færðu þessi geðveiku rör ??

    ReplyDelete
    Replies
    1. fann þau nú bara í tiger. 16 rör á 400 krónur minnir mig - algjörlega þess virði! :) veit að það er líka hægt að panta svona fínerí af amazon.com og held ég kaupa hjá íslenska pappírsfélaginu :)

      þykir samt líklegt að tiger sé langódýrasti kosturinn.

      Delete