May 27, 2013

Lífið á mánudegi.



Ekki byrjaði þessi grái mánudagur gleðilega. Ausandi rigning og lærdómur fyrir sjúkrapróf. Bölvað sjúkrapróf. Aldrei aftur! 


Dagurinn var þó ekki lengi að taka á sig nýjan og betri blæ þegar þessi pakki kom í hús. Ó, hamingjan.


Geðshræringin þegar stellið var tætt upp úr pakkanum - úff, hún var svakaleg. Guði sé lof að ég var ein heima. Sambýlismaðurinn hefði líklega þurft að kalla til áfallateymi hefði hann séð til mín. Fyrir sjálfan sig sko, ekki mig.



Ég náði að smella af nokkrum myndum á milli þess sem ég tók andköf yfir fegurðinni.


Það eru ansi margir bollar búnir að renna niður í óskaplega hamingjusama konu í dag.

5 comments:

  1. Stellid er med thví fallegra sem ég hef séd til lukku med thá :)

    ReplyDelete
  2. nei þegiðu, vá!
    nennirðu að bjóða í kaffi.

    ReplyDelete
    Replies
    1. komdu í heimahagana. ég býð í kaffi. og vodka.

      Delete