May 22, 2013

Gullnáma dagsins.


Ó ég gróf upp svoddan gullnámu í gærkvöldi. Eða kannski vissu allir af þessari netverslun nema ég.
Allavega - engin sendingakostnaður til Íslands og pakkinn kemur eftir 6-14 daga! Fullt af gullfallegum og ódýrum fötum. Og skartið - ég sá varla neitt sem kostaði mikið meira en 1300 krónur íslenskar. Gjöf en ekki gjald. Svona næstum því.

Þessi gullnáma er hér og ég kemst alls ekki hjá því að panta þennan jakka. Ég reyndi að fá mig ofan af því. Margoft.

Það bara gekk ekki sem skyldi.

3 comments:

  1. Sjúklega flott síða !! eiginlega of, langar í alltof margt (útskrift á næsta leyti, held kona verð eiginlega að leyfa sér)
    kv. Dagný Erla

    ReplyDelete
  2. ég get alveg reynt að útskýra fyrir þér hversu þakklát ég er fyrir það að bloggin eru hætt að snúast um mat og farin að snúast um versl - en það kæmi alltaf eitthvað asnalega út.
    en takk!

    ReplyDelete