Aug 20, 2013

Dagsins.


Afmælispakki dagsins. Pakkaður inn í gamalt landakort.


Mér finnst þetta koma mjög skemmtilega út. Hugmyndina fékk ég á Pinterest - að sjálfsögðu. Ég er Pinterestsjúklingur. Þið getið fylgt mér hér.


Tilraun dagsins: að hætta að drekka kaffi. Þessi tilraun gengur hræðilega - svona ef við tökum mið af geðheilsu minni. Ég er búin að fara að grenja tvisvar í dag. Einu sinni út af hárinu á mér og svo út af því að ég fann ekki uppáhalds bolinn minn. Ég kenni kaffileysinu alfarið um þessar geðshræringar.

Klukkan er tuttugu mínútur yfir eitt. Sirka tíu klukkutímar þangað til að ég fer að sofa. 

Ég skal hafa það af kaffilaus þangað til.

No comments:

Post a Comment