May 8, 2014

Fimm orð á fimmtudegi.


Það. Er. Brjálað. Að. Gera.

Ég skrifaði keimlíka færslu fyrir rúmlega ári síðan. Þá voru það alþingiskosningar sem yfirtóku líf mitt. Í dag eru það sveitastjórnarkosningar. Ég skoppa á milli Breiðholtsins og Fjarðabyggðar eins og um sé að ræða íbúðir í sömu blokk. Ekki staði sem eru sitthvorumegin á landinu. 

Líkt og í fyrra sinni ég starfi kosningastjóra. Virkilega krefjandi en skemmtilegt starf.

Ég tel dágóðar líkur á því að bloggið muni þjást örlítið vegna þessa. Svona út maí. Þið fyrirgefið mér það. 


Ef þið saknið mín agalega þá prýði ég síðu 72 í Fréttatímanum á morgun. 

Einnig er ykkur velkomið að njóta mín á Instagram - @gveiga85.

Heyrumst fljótlega.

No comments:

Post a Comment