Nov 7, 2012

Bugun.

Lærdómurinn bugar mig þessa dagana. Ég tók mynd á webcamið eins og sönnum fagmanni sæmir þegar bugun mín hófst um áttaleytið í morgun:


Og fyrst ég var á annað borð farin að fikta í webcaminu þá rak ég augun í ýmsar gamlar myndir þegar ég hef augljóslega verið að bugast fyrir framan þessa sömu tölvu og fundist tilefni til þess að festa það á ,,filmu". 





Ekki kannski mín stoltustu kodak-moments. Heldur blákaldur lærdómsbugunarraunveruleiki. Ef að það er orð. Sonurinn skynjaði bugunarandrúmsloftið á heimilinu þegar hann kom heim úr leikskólanum, náði sér í sæng og fór upp í sófa að sofa. 


Ekki alveg að nenna mömmu sinni núna. Gummi kom heim úr vinnu, borðaði og lét sig svo hverfa út um dyrnar. Ég hlýt að vera einstaklega leiðinleg þessa dagana. Ég bíð spennt eftir þessum degi:


Djöfulsins munur ef það væri 14.desember á morgun!






No comments:

Post a Comment