Sumt heldur maður meira upp á en annað.
Diskur sem ég fékk úr dánabúinu hjá ömmu og afa.
Agalega sætar köppkeikskrukkur sem ég splæsti á mig í Tiger um daginn.
Elskan mín - sem á þátt í þónokkrum kílóum sem sitja föst á mér. Kitchen Aid sem amma mín átti og afi minn gaf mér.
Gleðilega poppskálin mín frá Tenerife. Alltof stór til að setja popp í - en skemmtileg engu að síður.
Það fyrsta sem ég á samskipti við á morgnana. Kaffivélin mín og sá lífselexír sem úr henni kemur. Að ógleymdri jólakönnunni sem ég drekk úr alla daga, alveg sama hvort það er janúar, júlí eða desember.
No comments:
Post a Comment