Það er fátt notalegra en kertaljós. Ég er óspart með kveikjarann og kertin á lofti yfir veturinn - það er bara svo kósý. Þess vegna er ég alltaf að kaupa kerti, því þau jú klárast víst á endanum. Ég held að Gummi botni ekki upp né niður í þessari kertasýki minni og fær örugglega alltaf hnút í magann þegar ég fer að fikta með eld. Einu sinni kveikti ég nefnilega í megninu af hárinu á mér - hann varð því miður vitni. En það er önnur saga.
Ég sá svo flott kerti í einhverri Facebook-búð um daginn.
Þetta er svolítið skemmtilegt. Þá auðvitað sérstaklega Marilyn Monroe vinkona mín. Þau fást
hér.
No comments:
Post a Comment