Nov 15, 2012

Ódýrir draumar.

Það er ekki mjög dýrt það sem mig dreymir um þennan fimmtudag. Enda er ég að eigin mati sérstaklega hagtæð og ódýr í rekstri.



Agalega flottur jakki. Kostar nú ekki mikið - tæplega tíuþúsund - sem er nú bara klink svona á milli vina. Fæst hér.


Limited Edition af vaselíni? Bleikt vaselín? Af hverju vissi ég ekki af þessu og af hverju fæst þetta ekki hér? Ég elska vaselín. 


Að lokum langar mig ferlega í svona bleikan Smartiesstauk. Ég sá þetta áðan úti í búð en þorði ekki að kaupa mér. Ég á dálítið erfitt þegar kemur að Smarties. Ég hakka það í mig á ljóshraða. Og stundum tek ég upp á að borða það eins og ég sé fimm ára - sturta upp í mig úr stauknum þangað til að ég á næstum erfitt með andadrátt og sýg það svo af mikilli áfergju. Alveg þangað til dásamlegt súkkulaðið bráðnar upp í mér, naaaaaammmm!




No comments:

Post a Comment