Nov 20, 2012

Sjopping.

Ég pantaði mér þessi armbönd um daginn. Við erum löngu búin að útkljá það að ég á við smá vandamál að stríða þegar kemur að því að versla á internetinu. Það þarf ekkert að ræða það neitt frekar.


Ég pantaði þau hér og er ógurlega ánægð með þau. Sérstaklega er ég ánægð með að ég pantaði tvö svört en fékk svo hitt að gjöf því pakkinn minn fór á örlítið flakk sem seinkaði komu hans um tvo daga eða svo. Þessi gjöf gladdi mitt kaupsjúka hjarta alveg svakalega.


Það gerði þessi litli miði einmitt líka! Ókei, ég panta nú dálítið oft af netinu. En ég hef aldrei dregið önnur eins krúttlegtheit upp úr þeim pökkum og umslögum sem til mín berast. Ég veit ekki hvort kætti mig meira, armböndin eða miðinn. Svona getur nú verið auðvelt að gera mér til geðs!


No comments:

Post a Comment