Af hverju er ekki til svona glimmer-bjór á Íslandi? Þetta eru svo gleðilegar flöskur. Ég myndi drekka bjór með morgunmatnum ef þetta væri fáanlegt hér á landi.
Í kvöld ætla ég að drekka bjór. Íslenskan bjór úr ljótri áldós. En félagsskapurinn verður fallegur þannig að ég hlýt að lifa þetta af.
Sjáið þið pillurnar? Af hverju eru ekki allar pillur svona fallegar?
Ég ætti kannski að þakka Guði fyrir að ég hef hvorki aðgang að glimmerbjór eða glimmerpillum. Ég væri þá að öllum líkindum með lögheimili á Vogi.
Gleðilegt föstudagskvöld!
No comments:
Post a Comment